Hehe ég var að taka bílinn í gegn í gærkvöldi, massaði hann og bónaði svo með tefflonbóni. Hann glansar ekkert smá mikið Einnig gerði ég smá vorhreingerningu að innan og þá var ýmislegt sem kom í ljós. Ég tók sætin úr og þar leyndist þessi forláta kavíar túpa sem rann út árið 2002. Hún var reyndar ennþá innsigluð, sem betur fer
Svona var nú skítugt undir sætunum:
Svo eru hérna tvær myndir með. Ég tek fleiri og skemmtilegri myndir þegar það er ekki svona mikið sora veður úti! Svo koma bráðum ljós í réttum lit allan hringinn og annað gómelsi
..er ekkert mál að kippa þessum blessuðu sætum úr??
Það eru ekkert nema einhverjar slöngur og leiðslur undir mínum.......og það mætti alveg þrífa þar;)
Mér finnst bara svo gaman að vera góður við bílinn minn. Mér leið t.d. ekkert smá vel þegar ég var búinn að ryksuga allann þennan vibba upp og sá teppið alveg tandurhreint