Hugsa að þú tapir engu afli á hærri snúning en gildið frá AFM vantar nátturulega inn í myndina sem getur orsakað eins og þú lýsir ekki fullri vinnslu á lægri snúning. En um leið og þetta er komið yfir 3500-4000 sn fer þetta að skipta minna máli. Þetta er reynsla mín að keyra bíla sem er búið að taka AFM úr sambandi og ekki búið að mappa það inn í myndina.
Ef þú leitar að Alpha-n ,(varð voða tískuorð eftir síðustu heimsókn Mr.X , sá þetta aldrei hér áður) hér á spjallinu muntu finna eitthvað af greinum bæði frá gstuning minnir mig og síðan flott writeup frá X-inu um að mappa vélar MAF lausar hverjir eru kostirnir og gallar osfrv.
okey ég setti AFM í apparatið og þá byrjaði hann á að ganga frekar illa, leyfði honum að ganga í 15-20mín og þá skánaði hann aðeins, en þetta lýsir sér þannig að ég gef honum upp í svona 1/3 af gjöf og hann tekur ekkert við sér og svo rétt eftir 1/3 þá fer hann að sprengja. Eins og hann sé að fá bensín en bara stundum neista... svo dettur hann út í keyrslu eins og honum hentar...