1. loft flæði skynjarar
já hver þekkir þetta ekki.Maf skynjararnir fara á 10 þúsund kílómetra fresti. og þeir kosta sitt 63.729 kr stykkið í tb
ég hef heyrt að það sé hægt að fá svona skynjara hjá wolksvagen umboðinu niðurgreidda
lausn
http://www.m5board.com/vbulletin/m5-e39 ... place.html
það er víst hægt að þrífa þá! já og það virkar. Það er svo mikið af fínu riki hérna á íslandi stundum þá rispar það skynjaran og er hann þá ónýtur eyrnapinnar og smá tími redda þessu nú samt oftast
2. olíu brensla
brennir lítra á þúsund km fresti
lausn
það er hægt að kaupa repair kit fyrir ventlaþéttingar hjá b og l það kostar 13 þúsund kall... ekki slæmt!
3 Vanos!
ratlarin...disel power segja sumir
lausn
dr vanos!? http://www.drvanos.com/index.php?option ... 4&Itemid=5
læknirin er mættur með fix! Það er do it your self step by step með myndum og alles á þessari síðu en þú þarft sér tól til þess
þeir selja betri o hríngi og betri tannhjól þeir bjóða líka upp á að taka vanosið þitt upp í lagað vanos ef menn eiga peninga
4 keðju sleði...strekkjari
já stundum brotnar keðju sleðin en strekkjarin á það til að vera með bögg líka
lausn
ef það er sleðin þá þarf að skipta um hann. En ef þú hefur keyrt bílin svoleiðis þá eru brot af honum út um alla vél það er ekki gott
strekkjarin já ef hann er ekki að strekkja nógu vel á keðjuni þá er fjandin laus.Getur beygt ventla vegna þess að hún fer yfir á tíma en ef þú ert heppin þá þarf bara að skrúfa í sundur skipta og strekja aftur á keðjuni
5 swing hjól
það er tvískipt swing hjól og á það til að brotna
lausn
kaupa nýtt og aka eins og maður
ef eikkur er með fleyri lausnir og vandamál vinsamlegast bæta við

