Djofullinn wrote:En afhverju ertu að leita að verahlutum ef hann er í kaskó?
Kaupa þeir ekki bara nýja hluti fyrir þig?
Ef að varahlutirnir kosta alveg fáránlega mikið (sem þeir gera nýjir) þá verður upphæðin á viðgerðinni svo há að þeir borga bílinn út. Við viljum það ekki og erum að reyna að finna ódýrari varahluti sem að tryggingarfélagið borgar fyrir svo að við höldum bílnum og gerum við hann sjálfir.
Viðgerðin þarf ekki að fara mikið yfir 300-400þús til þess að tryggingarfyrirtækið telur það ekki þess virði að borga viðgerðina á 14 ára gömlum bíl. Nýjir varahlutir + vinna á verkstæði fara auðveldlega upp í þessa upphæð í dag. Við erum samt að skoða verð á nýjum hlutum líka, bara kanna markaðinn á notuðu til sjá hvað er í boði þar

Ég vona að ég er að ná að koma þessu nógu skiljanlega frá mér.