Ég ætla að reyna að taka myndir á næstu drift æfingu, til að geta fiktað með þær í Photoshop eftirá. Ég kann svosem á myndavél, en ég veit ekkert hvernig best væri að stilla vélina til að ná sem bestu myndum. Ætla að plamma þrífót á góðum stað og halda sama sjónarhorni á öllum myndunum. Ég vil að þær séu eins óhreyfðar og hægt er, en vil að bílarnir virðist vera 'á ferð'. Hvernig er best að stilla vélina fyrir þetta?
Öll ráð eru vel þegin.



