Mér hefur alltaf þótt þeir mjög töff í útliti með þetta langa húdd og brettaútvíkkanirnar að aftan en hafði aldrei prófað svo ég vissi ekki hvernig var að aka þessu. Þar kom það besta við þennan bíl því það er alveg svakalega gaman að keyra þetta. Liggja vel, mjög þægileg aktstursstaða, fínn krafturt (ekkert brjálað en sant mjög fínn) og drift on demand!!
Ég þrykkti þessu alveg hægri vinstri og get bara rétt ímyndað mér hvernig er að keyra hann á góðum sumardekkjum því hann var alveg svakalega skemmtilegur á nöglunum. Dálítið hrár eins og ég vil hafa bíla í dag, maður heyrði vel í vélinni, vélin alveg frábær og rassinn alltaf til að henda sér aðeins til á gjöf.
Uss ég er alveg orðinn kex eftir aksturinn



