Langaði eiginlega að forvitnast hvort einhverjir hér þekki þennan bíl eitthvað.
YR-999 E32 750i
Sennilega margir búnir að eiga hann og brasa eitthvað við hann og í honum.
Það er allavega læst drif í honum ( M5 býst ég við )
Og mér var sagt að það væri "líklega" búið að setja tölvu kubb(a) í hann sem ég veit ekkert hvort sé satt.
Var helvíti hress þangað til að skiptinginn ákvað að deyja alveg í síðustu viku. (fer önnur í um helgina + minna ekinn vél)
Allavega væri gaman að fá einhverjar upplýsingar, sögur, Myndir eða eitthvað sniðugt um þennan 750 Bimma.

