Þrif á bílnum ykkar

Hér skal spjalla um BMW.

Þrif á bílnum ykkar

Postby Andri Fannar » Tue 14. Jul 2009 00:03

Sælir,
var að velta fyrir mér hvernig þið færuð að þegar þið þrifuð bílana ykkar?
Það eru eflaust milljón mismunandi leiðir hérna og gaman að fá innsýn í hvað aðrir eru að gera og endilega segja hvaða efni menn eru að nota.

Hjá mér er þetta voðalega einfalt, bara nýbyrjaður að spá í þessu enda bara tveir mánuðir síðan fyrsti bíllinn kom í hús :)

- Felguhreinsir á felgur, skrúbba hann með svamp og skola af
- Skola af bíl með vatni
- Spreyja tjöruhreinsi og sápu á pústið og láta það liggja - nuddað af og skolað í lokin
- Tvær fötur og svampur á allan bíl með bílasápu
- Skolað af bíl
- Þurrkaður allur bíllinn og líka felgur
- Rúður teknar með Glass Cleaner að innan og utan
- Clean og Shine einhver froða spreyjuð á dekkin sem gerir dekkin eins og ný.
- Turtle Wax bón borið á og látið þorna, líka pústið
- Ryksugaður, mottur teknar með svamp, þurrkað af með rakri tusku að innan
- Borið á að innan, vínylgljáa
- Bón þurrkað af
- Mjallar hraðbón sett á hann til að fá svaka húð(þetta er geggjað)
- Hraðbónið þurrkað af og bíllinn shiiiny 8)

Þetta er eflaust eitthvað rugluð aðferð en hún hefur virkað mjög vel núna amk.
hérna eru þrjár myndir af bílnum í tengslum við þrifin.

Image

Image

Image
(smá ryð þarna sem sést, verður lagað fljótlega)
Image

>> BMW e46 318(2L) '02 - Í notkun <<
User avatar
Andri Fannar
Kassabílstjóri
 
Posts: 192
Joined: Thu 29. Jan 2009 14:31

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby SteiniDJ » Tue 14. Jul 2009 00:29

  • Ég byrja alltaf á felgunum, nenni ekki að fá felguhreinsi á hreinan bílinn
  • Þegar felgurnar eru hreinar, þá byrja ég á því að skola bílinn (fyrst með vatni og svo með sápuvatni).
  • Ég nota tvær fötur og þvottahanska (aldrei nota svamp, nema þú viljir rispa bílinn - það er hægt að fá góðan þvottahanska í krónunni á 500 kall)
  • Þríf hann í þessari röð: Húdd, framrúða, þak, skott, efri hliðar, afturstuðari, neðrihliðar, framstuðari
  • Svo skola ég hann og þurrka
  • Ber á dekkin dekkjasverti frá Meguiars.
  • Ef ég ætla að fara beint í það að bóna, þá leyfi ég bílnum að standa smá, meðan ég tek hann að innan
  • Nota interior efni frá Mothers, ryksuga, hreinsa rúður, ber á það litla leður sem er í bílnum, þríf motturnar o.s.frv
  • Ræðst á erfið leiðindi og ójöfnur með Dodo Juice Supernatural Claybar.
  • Ber svo á hann Dodo Juice Lime Prime og tek það af nánast samstundis. Ber á með Meguiars bómullarpúða og þurrka af með góðum microfiber klút
  • Ber svo á hann eitthvað bón frá Dodo Juice,f er eftir því í hvernig skapi ég er. Ef ég vill virkilega dunda mér, þá nota ég Dodo Juice Banana Armor, sem er hard wax og aðeins erfiðari að vinna það. Annars er Dodo Juice Rainforest Rub í uppáhaldi hjá mér, en Dodo Juice Purple Haze er líka gott og gerir góða hluti fyrir svartan bíl.
  • Leyfi bóninu að vinna aðeins, um leið og ég er búinn með allan bílinn, þá byrja ég strax að þurrka af
  • Svo horfi ég bara á bílinn

Image

Hérna er hann eftir session með Dodo Juice Purple Haze, í vetur. Mega shæn. 8)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby íbbi_ » Tue 14. Jul 2009 01:24

yfirleitt þegar ég fæ bíl í hendurnar sem ég ætla sjæna aðeins upp,

þá byrja ég á því að massa slæm svæði, sem eru t.d orðin veðurbarin eða rispuð, stundum tekur maður örfínan vatnspappír og pússar aðeins og massar svo aftur yfir, stundum bletta ég líka og massa svo yfir,

svo er oft gott að taka lista og annað sem hægt er að taka af, því það eru yfirleitt skánir meðfram sem maður sér ekki beint, en munar um þegar þær eru farnar, svo tek ég lista og annað og nota vinyl eða plasthreinsi,

tek felgurnar af og þríf þær að innan, það munar um það, besta blanda sem ég hef fundið er sýra+tjöruhreinsir sittoghvað og í einu, vel baðað. ég nota sýruna einnig á vélarhluta og púst,

svo er það bara góð bónhúð. ég forðast að nota bón sem eru hvít á litinn..

innréting.. fyrst fer ég á ljóta staði með mjög sterkum límuppleysi, svo bókstaflega drekki ég innrétinguni, teppunum og sætunum, moka þvottaefni yfir allt saman tek upp grófan skóbursta og bursta allt í döðlur og helli vatni aftur og aftur, svo er vatni'ð sogað úr og allt látið þorna yfir nótt
svo tek ég heitt vatn og helli vel af uppþvottalegi í, og grófustu gerð að skóbursta og og skrúppa mælaborðið vel blautt og sápa það nokkrum sinnum og þríf svo á endanum með sjóðandi vatni.

ég lærði þegar ég vann við að taka uppítökubíla í gegn ásamt því að standsetja nýja bíla(sem eru oftar en ekki ógeðslegir þegar þeir koma af höfnini) að bestu efnin eru efni sem eru ekki ætluð í bílatengdar aðgerðir, efni sem eru ætluð til þrifa á bílum eru oftar en ekki bara sull sem skilur eftir sig þykka glanshúð sem á endanum gerir andhverfu sína
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby SteiniDJ » Tue 14. Jul 2009 01:29

Hvað notarðu til að soga vatnið úr? Bara ryksugu án poka?
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby . » Tue 14. Jul 2009 02:27

íbbi_ wrote:efni sem eru ætluð til þrifa á bílum eru oftar en ekki bara sull sem skilur eftir sig þykka glanshúð sem á endanum gerir andhverfu sína



satt, var einu sinni að reyna þrífa reykingatjöruna úr gömlum vinnubíl þegar samstarfskona mín sem er pro ræstingar kona kom með eitthvað baneitrað hreinsiefni fyrir rimlagardínur sem maður blandar einn tappa af útí 20 l af vatni og skrúbbaði hann uppúr því og hann varð eins og nýr að innan, þetta bensínstöðva froðudrals virkar ekki neitt. :I
Bonjour 307 2005
BMW M-Zetor 2002
BMW 740 1996
Taxi 1972

BMW er reizing keppnistæki og bensar eru taxar
300.000 km eru nýju 200.000 km
User avatar
.
Getawaybílstjóri
 
Posts: 878
Joined: Tue 21. Jan 2003 13:43
Location: Reykjavík

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby Zed III » Tue 14. Jul 2009 12:08

íbbi_ wrote:yfirleitt þegar ég fæ bíl í hendurnar sem ég ætla sjæna aðeins upp,

þá byrja ég á því að massa slæm svæði, sem eru t.d orðin veðurbarin eða rispuð, stundum tekur maður örfínan vatnspappír og pússar aðeins og massar svo aftur yfir, stundum bletta ég líka og massa svo yfir,

svo er oft gott að taka lista og annað sem hægt er að taka af, því það eru yfirleitt skánir meðfram sem maður sér ekki beint, en munar um þegar þær eru farnar, svo tek ég lista og annað og nota vinyl eða plasthreinsi,

tek felgurnar af og þríf þær að innan, það munar um það, besta blanda sem ég hef fundið er sýra+tjöruhreinsir sittoghvað og í einu, vel baðað. ég nota sýruna einnig á vélarhluta og púst,

svo er það bara góð bónhúð. ég forðast að nota bón sem eru hvít á litinn..

innréting.. fyrst fer ég á ljóta staði með mjög sterkum límuppleysi, svo bókstaflega drekki ég innrétinguni, teppunum og sætunum, moka þvottaefni yfir allt saman tek upp grófan skóbursta og bursta allt í döðlur og helli vatni aftur og aftur, svo er vatni'ð sogað úr og allt látið þorna yfir nótt
svo tek ég heitt vatn og helli vel af uppþvottalegi í, og grófustu gerð að skóbursta og og skrúppa mælaborðið vel blautt og sápa það nokkrum sinnum og þríf svo á endanum með sjóðandi vatni.

ég lærði þegar ég vann við að taka uppítökubíla í gegn ásamt því að standsetja nýja bíla(sem eru oftar en ekki ógeðslegir þegar þeir koma af höfnini) að bestu efnin eru efni sem eru ekki ætluð í bílatengdar aðgerðir, efni sem eru ætluð til þrifa á bílum eru oftar en ekki bara sull sem skilur eftir sig þykka glanshúð sem á endanum gerir andhverfu sína


uss, ég ætti að fá þig til að taka minn í gegn.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby bimmer » Tue 14. Jul 2009 12:17

SteiniDJ wrote:
  • Þríf hann í þessari röð: Húdd, framrúða, þak, skott, efri hliðar, afturstuðari, neðrihliðar, framstuðari


Af hverju þessa röð? Er ekki sniðugra að gera þetta top to bottom?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby arnibjorn » Tue 14. Jul 2009 12:49

Nennir einhver að þrífa bílinn minn? Af því að ég nenni því ekki........
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby SteiniDJ » Tue 14. Jul 2009 15:02

bimmer wrote:
SteiniDJ wrote:
  • Þríf hann í þessari röð: Húdd, framrúða, þak, skott, efri hliðar, afturstuðari, neðrihliðar, framstuðari


Af hverju þessa röð? Er ekki sniðugra að gera þetta top to bottom?


Þetta er í raun top to bottom, nema að húddið er yfirleitt aldrei svo skítugt.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby Kristjan » Tue 14. Jul 2009 15:39

Ok, en hvort ertu top eða bottom?
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby Hreiðar » Tue 14. Jul 2009 16:08

arnibjorn wrote:Nennir einhver að þrífa bílinn minn? Af því að ég nenni því ekki........


Í alvöru :o Ég er með þrif æði, bóna svona 7-10 bíla á mánuði vinur :D
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby ValliFudd » Tue 14. Jul 2009 16:56

Hreiðar wrote:
arnibjorn wrote:Nennir einhver að þrífa bílinn minn? Af því að ég nenni því ekki........


Í alvöru :o Ég er með þrif æði, bóna svona 7-10 bíla á mánuði vinur :D

Sææælll... Held að ég hafi þvegið Yarisinn svona 2x að utan á þessum 3 árum sem ég átti hann og aldrei að innan :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby Hreiðar » Tue 14. Jul 2009 17:08

ValliFudd wrote:
Hreiðar wrote:
arnibjorn wrote:Nennir einhver að þrífa bílinn minn? Af því að ég nenni því ekki........


Í alvöru :o Ég er með þrif æði, bóna svona 7-10 bíla á mánuði vinur :D

Sææælll... Held að ég hafi þvegið Yarisinn svona 2x að utan á þessum 3 árum sem ég átti hann og aldrei að innan :lol:


Haha vel gert, hvernig lyktaði hann að innan ? :D Ég skil samt ekki afhverju, ég elska bara að bóna bíla, tók um daginn 3 í röð og var alveg game í annan. Þetta geri ég á frídögunum mínum :thup:
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby SteiniDJ » Tue 14. Jul 2009 17:22

arnibjorn wrote:Nennir einhver að þrífa bílinn minn? Af því að ég nenni því ekki........


Ég skal þvo hann fyrir 1000 kall. 8)

Kristjan wrote:Ok, en hvort ertu top eða bottom?


Ég er top gaur.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Þrif á bílnum ykkar

Postby ValliB » Tue 14. Jul 2009 21:07

En hvernig er með plastlistana hjá ykkur?

Var í basli með þá á e36 320 bílnum hjá mér, en á 325 eru þeir mikið betri.

Tók mig til 17. júní og fór með hitabyssuna á listann á afturstuðaranum, og það var allt annað að sjá hann.
bmw3
User avatar
ValliB
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1070
Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Location: Húsavík

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 14 guests