Jæja, þetta er verulega gaman. Að sjálfsögðu einhver skakkaföll eins og ég bjóst við, þó ekki skakkafallið per se kannski sem ég var að búast við.
- Bíllinn notar það bensín og olíu sem er sett á hann, fínt mál.
- Bíllinn er verulega þéttur á alann hátt, betri en ég hélt.
- Miðað við marga er óverulegt Vanos tikk í honum finnst mér, og á engann hátt böggandi.
- Lakkið á honum er ótrúlega flott eftir mass og bón frá Kelirínu.
- Innréttingin er GEGGJUÐ!
- Krafturinn er bara í lagi, fyndið hvað þetta eru 2 bílar, uppað og yfir ca 4000 rpm.
- Og sum sé bara gaman.
Skakkafallið var heimsk miðstöðvarmótstaða, sem gerði bílinn nánast rafmagnslausann, þó ekki alveg, en ekki vildi hann í gang engu að síður. Kann ég Hr. Alpina, aka Sv.H. hinar langbestu þakkir fyrir startið, og fyrir að merkja sér bílakjallarann mjög vel og kúl, sem og Bjarka snillingi að redda þessu á klukkutíma.
Stupid bilun, en svona er þetta nýmóðins drasl
Kem með betri pistil eftir helgi eftir að Bjarki fær að fikta aðeins í honum og betrubæta.
G