Hvernig á spjallborðið að vera, á fólk að skrifa helvítís rassaþurkur, hommar, mellu, kuntur osfrvs.
Er ég sá eini sem finnst að fólk eigi ekki að nota svona orð þegar verið er að skrifa hér á spjallinu?
Ég nenni ekki að vera að röfla yfir þessu og láta þetta fara í pirrurnar á mér ef það er ekki stór meirihluti fólks hér sem er sömu skoðunar og ég.
Ég er bara orðinn nett pirraður á því hvað það er mikið af svona skrifum hér inni og öllum virðist vera sama. Þetta er að setja spjallið skörinni neðar að mínu mati, mér finnst þessi orðanotkun ekki hæfa stað þar sem þroskaðir einstaklingar tjá sig.
A.m.k. finnst mér ég vera sá eini sem er eitthvað að setja út á þessa orðanotkun.
Hvað segir spjallið um þetta?




