Þá er komið að því...
BMWkraftsútilegan ROSALEGA verður laugardaginn 25. júlí!!
Planið er að hittast hjá KFC í Mosfellsbæ eins og vanalega.
Mæting hjá KFC klukkan 13:00.
Þaðan leggjum við af stað uppí Hvalfjörð. Tökum smá blast um fjörðin eins og vanalega og síðan er aldrei að vita hvort að einhver fær ljósmyndari verður með í för, þá tökum við klárlega gott photoshoot
Við gistum á sama stað og síðast. http://www.hvammsvik.is
BMWkraftur skaffar eins og vanalega góðu stemninguna og BMWkraftsgrillið.
ÞÚ þarft að koma með eitthvað á grillið(slöngur, naut, svín, hross etc) og drykki(bjór).
Ég mæli síðan með því að allir taki með sér eitt stykki tjaldstól(ég tek eflaust 3, brýt alltaf nokkra!)
Algjör bömmer að þurfa standa allt kvöldið
Ég hvet alla til að gista, það er lang skemmtilegast! En auðvitað engin skylda að tjalda, allir mega koma og taka rönn um Hvalfjörðin og grilla með okkur
Þeir sem að ætla að tjalda þurfa að senda á mig stuttan emil (arnib11 hjá gmail.com) eða PM og láta mig vita af því að ég þarf að vita ca. töluna á þeim sem tjalda.
Ég er eflaust að gleyma einhverju.. ef eitthvað kemur ekki fram þá bara endilega spurja.
kv. Skemmtinefndin
Ps. Þessi gaur mætir

Og hérna má skoða myndir frá útilegunni 2008. Damn hvað það var fáránlega gaman og núna verður þetta ekki síðra!!
viewtopic.php?f=4&t=30709&hilit=%C3%BAtilega&start=90


