Takk fyrir linkinn. Bílnum var greinilega haldið vel við hjá þessum Danna.
Var að fá hann í hendurnar og það er nokkuð langur listi af hlutum sem þarf að laga (loftkæling, topplúga, air-bag ljós, abs skynjarar, bensínmælir, fullt af stífum í hjólabúnaði etc). Ég hef sem betur fer allt sem þarf í það nema það vantar aðeins upp á skillsetið. Honum verður hjúkrað aftur í topp stand.
Það er eitt sem er að bögga mig, það er talað um sítt að aftan fíling á honum. Er þetta eðlilegt eða einhvert lækkunarstunt sem hefur klikkað illilega? Bæði afturdekkin eru nefnilega rosalega slitin að innan, en það gæti líka verið ballanstangarendinn sem er brotin sem veldur þessu missliti.

Það voru annars engir reikningar sem fylgdu með að ráði þegar ég fékk hann
