by MR.BOOM » Wed 08. Jul 2009 15:47
Það eru þrjú vöð sem þú þarft að skoða vel áður en þú lætur vaða í þau.
Fyrsta er neðra vaðið á Lóninu sem er yfirleitt létt yfirferðar,næst er Steiholtsáin
hún getur verið stórvarasöm illa búnum jeppum,mikil straumur getur verið í henni og hún vel djúp,síðast er það Grjótáin hún er eina stóra bergvatnsáin á leiðinni upp í mörk,hún er stundum vel kröpp að fara ofaní og ef eru leysingar þá djúp.
Besta ráðið ef þú ert ekki með það á hreinu hvernig á að fara yfir vöð,bíddu þá eftir betur búnum jeppa og fylgsdust hvering
hann ber sig að og fáðann til að hinkra eftir þér meðan þú bograst yfir.
Staumvötn eru hlutir sem menn leika sér ekki að,hef séð marga fara þarna illa í gegnum árin.
Sæmundur Eric.
Lancia Delta HF Integrale Evo I - Saab 900aero - Mazda 323 GLX.
