saemi wrote:
krullih wrote:
Ekkert að tala með eða á móti umræðunni - en erum við farin að ritskoða orðbragð á spjallborðum internetsins?

vafasamt!
Er eitthvað að því? Hvað er vafasamt við að ritskoða orðbragð? Viltu frekar að fólk að segja andskotans og helvítins og fokk og mella og hóru og ég veit ekki hvað og hvað eins og ég er búinn að vera að stoppa af?
Voðalega finnst mér eitthvað skrýtið þegar fólk getur ekki einu sinni verið með á því að sleppa svoleiðis orðbragði. Hvað vill fólk eiginlega fá út úr þessarri síðu?
Á maður bara að hætta þessu og leyfa öllum að segja og gera allt hérna.... er það sem þið viljið?
Ef þetta er satt sem þú segir að þú sért að deleta orðbrögðum... þá tek ég að ofan fyrir þér... næs vörk góin on

Það er rétt hjá sæma, ljót orðbrögð á kraftinum eru ekki töff og sérstaklega ekki þegar þeim er beint á niðrandi hátt.
Dæmi sem mér finnst að ætti að leyfa: "Djöfull er þetta sick as moðafokkin kúl bíll maður.. díses kræst maður... þú ert með hreðjar á stærð við gölt með að eiga þennan bíl maður..."
Dæmi sem er ekki töff: "Djöfull ertu sick as moðafokkin ógðeðslega heimskur M20B25 er líka til í E34, díses kræst, mætti halda að þú værir með heila á stærð við mús"