///M wrote:
Dr. Stock wrote:
Þessi E24 bíll á ekki að fara í ruslið. Ég hef séð menn "tjasla" upp á mun verri bíla en þennan. Mikið verk en ekki óyfirstíganlegt. Menn tína ekki E24 upp af götunni þessa dagana. Held að það séu duglegir fornbílamenn sem eiga þennan bláa E24 bíl og þeir kalla sko ekkert ömmu sína í þessum efnum margir hverjir. Annars væri gaman að fá nýjar myndir af E30 Baurnum. Þar er gott project á ferðinni. Tekur sinn tíma en það sem ég hef séð í því projecti finnst mér flott. Eigandi þess bíls er þarna að varðveita einstæðan bíl, sama yrði upp á teningnum ef þessi E24 yrði gerður upp. Menn fara varla að flytja E24 inn eða hvað með Evruna í 180kr!!!!!!!!??????? Góður E24 kostar 15-20.000 Evrur og menn geta sjálfir reiknað hvað það kostar komið hingað. Semsagt höldum vel upp á flotann hér heima af góðum BMW bílum hvort sem það er E24, E30, E28 eða eitthvað annað. Sárvantar reyndar almennilegan E21 á götuna!!
Og hvað kosta varahlutir í svona bíl með evruna í 180kr!!!!!!!!??????
Ekki vera svona neikvæður Óskar......
Þótt þú getir ekki ímyndað þér að taka að þér svona verkefni, þá eru kannski aðrir tilbúnir í það.
Einnig er öðruvísi sjónarmið haft til hliðsjónar þegar menn eru að uppgera/laga bíla sem þeir ætla sér að eiga sjálfir.
Þá er aðeins minna horft á kostnaðarhliðina, amk hvað varðar vinnu.
Varahlutir í þetta eru margir hverjir þeir sömu og í E28 og ætti ég t.d. eitthvað handa þeim sem færi í uppgerð á þessum bíl.
Slithlutir sem þarf að skipta um......eru þeir sömu og ef einhver ætlaði að laga og eiga 199x Toyotuna sína.
Fáránlegt að kasta þessum bíl ef boddýið er ekki gegnum étið af ryði.
Nógu er nú kastað samt, það verður að halda í eitthvað af þessum klassísku BMWum, þótt það kosti einhverja vinnu.
Það er amk mín skoðun á málinu.
Einnig ef að mín biðu ekki 4 bílar til að sinna, þá myndi ég sækjast eftir því að eignast þennan bíl til að gera góðan.
