bebecar wrote:Það er reyndar ekki sjálfgefið að þú getur keypt hvaða Mitsubishi sem er hjá umboðinu. Þeir flytja almennt ekki inn bíla nema uppfylla skilyrði með ábyrgð o.s.frv. og eflaust þarf sér tölvu og/eða verkfæri fyrir svona bíl og það er yfirleitt eitthvað í þeim dúr sem stendur í vegi fyrir því að umboðin taki einn og einn bíl til að krydda hjá sér flóruna.

BMW 318I wrote:Ég held bara að umboðinn sé hrædd við að tapa á svona innflutningi t.d. akkuru flytur brimborg ekki inn Focus ST170 eða Mondeo ST220(var á verð lista í sumar) ég vona bara þeir flytji inn Focus RS það vantar alveg svona bíl á klakkan það er t.d. flutt inn Corolla T-sport sem er svipuð og fordinn vantar að vísu AWD á báða.
Sæll Birgir.
Focus RS verður aðeins framleiddur í takmörkuðu upplagi og því miður náðum við ekki framleiðsluplássi fyrir okkur. Ein ástæðan var sú að þegar Ford opnaði fyrir pantanir var mikil lægð í bílasölu og því lítið vit í að panta bíla í þessum verðflokki. Nú þegar salan er aðeins að taka við sér þá kom í ljós að allir bílarnir eru löngu seldir.
Kveðja
Brimborg
Egill Jóhannsson
gstuning wrote:Dæmi með þessi vitlausu bílaumboð,
Það var hér um árið bíll mögulegur með þá bestu vél í heimi
Hann var að öllu leiti alveg eins og aðrir bílar af sömu tegund fyrir utan það að hann var með 4 ventlum fleiri, og hann var ekki fluttur inn, hann hefði verið aðal keppnisaðili Civic VTi ´92 ´93
Þetta er Toyota Corolla GTi 20V 165hö með vvti og með hestöflin í lægri snúning en vti og meira tog í þokkabót,
Afhverju var þessi ekki fluttur inn??
Því að það hefur ekki verið stefna Toyota á Íslandi að bjóða performance bíla, heldur að selja í magni til allra hina..
Sama með restina,
Það sakar ekki neitt að hafa bíl á verðskrá, og ef hann er fluttur inn þá selst hann strax, ef einhver kemur með bíl inn til umboðs þá tekur ekki lengri en mest 48tíma að fá part með express flutning, alveg hægt að gera það einu sinni og einu sinni,
Flóran af bílum á íslenska endursölu markaðnum er brandari það er bara svoleiðis
Evo VII í best motoring video var að brillera á meðan Understeer kóngurinn Sti Imprezza var aftast,


Users browsing this forum: No registered users and 64 guests