Þetta er '93 árgerðin af BMW 320i. Fluttur inn frá Þýskalandi árið 1999.
Bíllinn er vel búinn til "fótanna" á allsvaðalegum svörtum stálfelgum
Takið eftir því að hann er ekki með nein stefnuljós á hliðunum. Man eftir umræðu á spjallinu hér fyrir nokkrum mánuðum síðan um það hvenær þessi stefnuljós hefðu komið á hliðarnar. Nú eru lang flestir þessir bílar með stefnuljós á hliðunum og einnig þeir sem eru eldri en þessi. Þannig að ég var að spá hvort þeir hefðu komið svona án hliðarstefnuljósa í einhverjum sérstökum útfærslum, sbr shadow line bílarnir með nýrun o.s.frv.
Ef þið horfið í gegnum stýrið þá sjáið þið að beint fyrir framan gírstöngina er lítill grá bóla. Þetta er þjófavörnin í bílnum, þegar hún er virk þá blikkar hún rauðu ljósi. Alltaf áður en ég starta bílnum þá þarf ég að slökkva á þessu með þar til gerðu stykki (tölvukubbur) sem ég smelli ofan á þetta og þá hættir hún að blikka. Ef þetta er ekki gert þá startar bíllinn ekki.
Þetta hef ég ekki séð í neinum öðrum svona bíl. Þannig að ég spyr, hafið þið séð svona í einhverjum af þessum bílum?
Orginal kassettutæki sem klikkar ekki
Ekinn 213.512 km, held að hann hafi komið til landsins í kringum 160.000 km.
Bíllinn er hugsanlega til sölu ef einhver hefur áhuga.


