
Bifreiðar
Ekki er hægt að taka vélknúin farartæki með búslóðinni til Noregs án þess að greiða tolla af þeim. Nánari upplýsingar um tollskráningu á farartækjum og upphæð tolla eru á vef Tollstofu (Tollvesenet).
Áður en bifreiðin er tekin til landsins er mikilvægt að afla sér upplýsinga hjá Umferðarstofu (Statens vegvesen) (Vegvesen.no), um tæknikröfur sem gerðar eru til farartækisins áður en það fær norsk skráningarmerki. Einnig er mikilvægt að kanna útflutningsreglur hjá yfirvöldum í brottflutningslandinu.
Pendlarar og fólk sem býr tímabundið í Noregi
Einstaklingar sem búsettir eru erlendis og uppfylla öll skilyrði mega aka um í Noregi í bifreið á erlendu skráningarmerki. Þetta á við fólk sem vinnur tímabundið í Noregi eða pendlar á milli vinnustaðar í Noregi og heimilis í öðru landi.
Ef einstaklingar hyggjast dveljast allt að eitt ár í Noregi þurfa þeir ekki að sækja um ökuleyfi hjá Tollstofu. Skjöl sem staðfesta að um tímabundna dvöl sé að ræða verða alltaf að vera í farartækinu. Ef dvölin í Noregi er framlengd í allt að tveimur árum þarf að sækja um ökuleyfi. Umsóknin er send Tollstofu (Tollvesenet) áður en ár er liðið frá því að sest var að í Noregi. Ef breytingar hafa orðið á starfsráðningu á árinu ber að tilkynna það strax til Tollstofu (Toll).
Einstaklingar sem pendla á milli Noregs og annars lands geta í vissum tilvikum notað farartæki í Noregi sem skráð er í öðru landi. Þá er annað hvort farið fram á að einstaklingurinn pendli daglega eða dveljist erlendis í að minnsta kosti 185 daga á 12 mánaða tímabili. Hann má ekki vera með norskt lögheimili, né heldur maki hans og börn undir 18 ára aldri. Nánari upplýsingar á vef Tollstofu (Toll).
Reglur um tollfrjálsan innflutning og tímabundinn akstur er að finna í fyrirmælum um tollfrjálsan innflutning og tímabundin not af erlendri bifreið í Noregi (Toll). Fyrirmælin eiga einnig við um hengivagna og hjólhúsi.

Bui wrote:farðu bara inná http://www.vinnumalastofnun.is þar eru allar upplýsingar sem þú þarft, en getur ekki tekið bíl sem er með lán á sér.!
EDIT http://www.eures.is/atvinnuleitandi/gatlistar/#Nordurlond

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests