Hvernig er það með þetta Navigation í BMW, ég er að pæla í fyrir E39 og E61.
Er þetta bara eitthvað spes sem BMW býr til eða eru þetta t.d. Garmin tæki eða álíka merki?
Hvar fæ korta diskana fyrir þetta? Hvort sem er hér heima, á netinu eða ef maður færi t.d. með Smyrli, hvaða búð maður myndi fara í úti til að nálgast þetta?
Verða diskarnir að vera spes BMW ...eitthvað?
Passa sömu diskarnir á milli t.d. eins og ég er að pæla fyrir ´96 E39 og ´05 E61?
Ég reyndi að leita í leitinni en fann bara einn þráð frá 2006 þar sem menn voru að tala um íslandskort fyrir bimma navið.
Er það til? Ef svo er hvar get ég fengið hann og hvað kostar það? Eða var það bara eitthvað sem menn voru að byrja að vinna við og ekkert varð úr?
Man bara að menn voru einhverntíma að tala um þetta hérna á spjallinu.

