Atlands Olía

Hér skal spjalla um BMW.

Postby zazou » Fri 16. Jan 2004 11:43

Brrrrr.... þetta er farið að minn spjallþráð hjá liftúkrúz :argh:
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby gstuning » Fri 16. Jan 2004 11:43

Jæja,

Hverjum er bara ekki sama, takið það bensín sem þið viljið
það virkar fyrir mig :)

ef atlandsolía ætlar að standa sig verða þeir að koma sér upp dreifikerfi, og helst hefðu þeir þurft að versla eitt olíu félagið til að fá dreifinga net þeirra svo gætu þeir byrjað að breyta hlutunum eins og þeir vilja,

þeir detta snögglega út ef þeir ætla að vera flytja inn bensín til að selja á einni bensín stöð, það meikar bara ekkert sense, þessi markaður er ekki góður til að ná fótfestu sem samkeppnis aðili því að reglurnar eru svo lausar fyrir hina sem er með fótfestu að það er ekkert mál að keyra hina í burtu sem reyna að koma inn, sama með flugfélaga markaðinn,

It takes money to make money

sjáið bara ríkasta mann íslands, hann kaupir og kaupir, þótt að hann eigi ekki peninga fyrir því , því að það þarf ekki peninga heldur þegar þú kaupir eitthvað og ræður getur þú hagrætt hlutunum eftir þínu höfði, ef þu kaupir meira þá ræðurru meira,
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Jói » Fri 16. Jan 2004 12:19

Í sambandi við dreifingu olíunnar þá eiga ESSO og Olís saman eitt dreifingarfyrirtæki, Olíudreifingu. Ennfremur þá á ESSO einhver 35-40 % hlut í Olís.

Shell er með sína eigin dreifingu.

Atlantsolía er auðvitað bara með örfáar stöðvar á svo til sama staðnum, eingöngu innan höfuðborgarsvæðisins. En ef þeir ætla að fjölga stöðum þá þurfa þeir að leggja svolítið á sig og það er alveg spurning hvort það svari kostnaði að keyra bensínið t.d. alla leið norður á Akureyri fyrir þann litla markað. Ætli þeir byrji ekki á því að koma sér vel fyrir á höfuðborgarsvæðinu og síðan athugi þeir málin í framhaldinu af því. Reykjanesið er frekar fjölmennt og mikil keyrsla þar og ég gæti trúað því að þeir muni fyrst fara þangað ef þeir ætla sér ekki eingöngu að vera á höfuðborgarsvæðinu. Jafnvel að þeir setji stöð á leiðinni frá RVK og Kef, þó það nálægt þéttbýlisstöðunum að þeir nái til ferðalanganna og íbúanna á Reykjanesinu.

En AO er með góðan grunn varðandi dreifingu bensíns. Þeir eiga tvo olíubíla auk tveggja tengivagna og fullhlaðnir taka þeir 100000 lítra af bensíni. Þeir eiga birgðastöð (stórir tankar) sem taka 5000000 l af bensíni. Síðan er AO auðvitað að fullu í eigu Atlantsskips sem á 3 flutningsskip. Þeir hafa búnaðinn og grunninn til þess að verða mjög stórir á þessum markaði. Síðan mixað saman við góðan metnað og KR hjartað þá geta þeir gert eitthvað stórt.

En það besta við AO er að þeir halda allir með KR! Gunni Einars miðvörður í KR er einn af 7 starfsmönnum þarna og Kristinn forstjóri er einn harðasti KR - ingur sem er til, og einn af stofnendur KR útvarps (ef ég man rétt). Hver leikur síðan í auglýsingum fyrir Atlantsskip? Enginn annar er Kristján Finnboga, fyrirliði KR.
Síðan er reyndar Shell stærstu styrktaraðilar KR. Já, það leynast KR - ingar alls staðar.

Mín spá er sú að Atlantsolía verða orðnir stærstu styrktaraðilar KR liðsins fyrr en síðar og það er STÓR áfangi. Við munum þá sjá fallega KR búninginn með einhverju öðru merki en Shell framan á.
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby Haffi » Fri 16. Jan 2004 12:43

ahaha hvaða fótbolta ást kom allt í einu upp í þér :D

ÁFRAM KR !!
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby bebecar » Fri 16. Jan 2004 12:51

Hehe- ég er nú ekki viss um að Shell gefi merkið eftir á treyjunum, en maður trúir nú svosem öllu á þessum síðustu og verstu!

En, já það er rétt að Atlantsolía er með sterkan strúktur í uppbyggingu, en það verður eiginlega ekki hægt að taka mark á þeim fyrr en þeir eru búnir að koma sér upp nokkrum stöðvum og þá sjáum við hvaða verð verða raunverulega í boði.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 26 guests