Ég er nörd og ákvað að reyna að gera lista eins og Stebbi gerði um E30.. ekki að það sé erfitt að gera það um E34 M5 þar sem ekki margir eru á íslandi..
Byrjum á 3.6 bílunum..
Þekktasti er sennilegast
MJ 877



Ingvar Örn (bebecar) átti þennan bíl og var þetta held ég fyrsti E34 m5 sem sást á kraftinum.. Logi hefur einnig átt hann.. eigandi á eftir Loga breytti honum.. gerði hann chromeline, seldi BBS RS (Aron Jarl á þær í dag), henti rondell58 undir og hvítum stefnuljósum..
lítur hann nokkurn veginn svona út.. (gamlar myndir frá því að Úlli átti hann)

Apollo hérna á kraftinum á hann í dag

nýjar myndir af honum
NV-097Þessi bíll er búinn að vera hérna frá 1999 held ég.. Hann var fluttur inn af Marteini sem flutti einnig inn 3.8 bílinn minn.. Raggi M5 átti hann um tíma og var duglegur við að pósta myndum af honum..
Bílinn tjónaðist fyrir 2 árum.. Er í eigu Þóris sem á einnig tvo aðra 3.8 bíla.. Hann ætlar að setja hann aftur á götuna..

TE-802Bíll sem var í eigu Zneb og Bmw-owner hérna á kraftinum.. x5power- Nonni Bras á hann í dag.. bílinn er með hvítu leðri og svartur á litinn..


UO-948Sæmi flutti þennan bíl inn.. @li e30 (þáverandi eignandi) tók alveg svakalegt rönn á honum upp á akstursbraut.. roark85 átti hann einnig.. Hann er núna á Snæfellsnesi á bæ þar



AP-978Sæmi flutti þennan einnig inn.. Hann var í eigu Kidda M5 (sem gerði E30 335i mtech til).. Bílinn er lítur mjög vel út í dag.. Eigandinn mætir reglulega á samkomur á honum
Myndir síðan að kiddi átti hann


Nýleg mynd tekin af honum á samkomu.. Hann er kominn með E39 M5 copy stuðara og á Rial felgur
RO-119Bíll sem margir meðlimir hafa átt.. Kull, Anger, Sezar og Alpina.. Sezar skipti um gírkassa í honum og í hanskahólfinu voru stórir reikningar þegar hann keypti hann.. Alpina kaupir hann svo og lætur heilmála bílinn og tekur bílinn alveg í nefið.. setur í hann bilstein fjöðrun og spaðar hann til..
myndir frá Kull


Nýjustu myndirnar..



Bílar sem ekki eru lengur í umferð PD348 (bílinn sem Sh4rk reif ?)
OK núna eru það 3.8 bílarnir..
SX-739Bíll sem Þórir Garðarson á.. Bílinn er með alcantara/tau sætum og nurburgring fjöðrun..
Þrusu flottur með Hella dark og þessi litur er mjög fallegur..


MP-662Þórir Garðarsson á þennan bíl líka.. hann er víst mjög heill.. Svartur á litinn.. Hann hefur ekki farið á númer síðan 2003 held ég..
LZ-554Ég á þennan bíl. 2002tii átti hann á undan mér.. Hann keypti hann af toyota árið 2000 og á undan toyota átti hann maður sem hét Marteinn og flutti hann einnig inn NV097.. Bílinn er með alcantara/tau sætum og svörtu mælaborði.. Hann er Daytona Violett og er einnig með Nurburgring pakkann..



Ef einhver eigandi þessara mynda vill að ég taki þær út má hann senda mér PM og því verður reddað..
Gaman væri að fá meira info um alla bílana og ekki vera ef fólk myndi henda inn myndum.. og já einnig ef einhverjar villur eru í þessu endilega leiðrétta mig..