Atlands Olía

Hér skal spjalla um BMW.

Postby bebecar » Thu 15. Jan 2004 21:58

Sammála. Þetta er bara fáránlegt.

En Orkan er ennþá samt með lægst :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

.

Postby Wolf » Fri 16. Jan 2004 02:28

Þetta er bara enn eitt dæmið um hvað Olíu risarnir eru duglegir að taka fólk í rassgatið :!: :!: :!: Þeir geta leyft sér að gera hvað sem er án þess að nokkuð sé gert við því, þeir ættu að vera löngu búnir að sameinast allir undir einn hatt t.d ÍslandsOlía, þeir eru jú allir svo góðir vinir. Markaður án allrar samkeppni eins og þeir eru búnir að standa fyrir í fjölda ára er ömurlegt fyrirbæri. Ég vil nefna dæmi um þegar ÍslandsFlug fór að bjóða miklu lægri fargjöld innanlands, fyrir ekki svo löngu síðan. Flugleiðir sáu sig tilneidda og lækkuðu líka, Svo þegar landsbyggðar menn voru teknir tali og spurðir hvort þeir væru ekki ánægðir með lækkunina, og flygju þar af leiðandi með Íslandsflugi, lækkunin er frábær, en við vorum svo vön að fljúga með Flugleiðum, að við höldum því bara áfram. Hvað gerist??? Auvitað fór Íslandsflug á hausinn :!: Aðili sem kemur inná markaðinn, kílir verðið niður og skapar samkeppni. Hvernig er hann svo verðlaunaður??? Jújú, með því að fljúga með keppinautnum. Sem að sjálfsögðu kíldi verðið upp strax eftir að íslandsflug fór á hausinn. Þetta vildu menn greinilega af eimhverri heimsku kalla yfir sig :!: Nákvæmlega sama er að gerast með AO, nema sem betur fer eru þeir ekki farnir á kúpuna. Þó að þeir hafi ekki lækkað um einhverja tíkalla, þá hleyptu þeir heilbrigðri samkeppni í þetta, og píndu risana til að lækka. Við vitum allir hvað gerðist strax eftir að AO varð uppiskroppa með bensín! Ætlum við að láta Risana endalaust taka okkur í görnina :?: :?: :?:
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Postby saemi » Fri 16. Jan 2004 02:35

P.S. Íslandsflug fór ekki á hausinn og það var Flugfélag Íslands sem var í samkeppni við þá ekki Flugleiðir :wink:

Íslandsflug er með 6 Airbus 300/310, 6 Boeing 737 og 2 Dornier flugvélar.

Fljúga innanlands til Vestmannaeyja, Sauðárkróks, Bíldudals, Gjögurs og Hafnar.

En það er annað mál að Íslandsflug hætti að fljúga innanlands til staða eins og Akureyrar og Egilsstaða vegna þess að farþegafjöldinn var ekki nægur. Einmitt vegna þess að fólk var ekki nógu duglegt að fljúga með þeim :?

Ég styð heilshugar Atlantsolíu, kem til með að versla við þá þegar þeir fá meiri orkugjafa.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Haffi » Fri 16. Jan 2004 08:40

Ég er bensínlaus þar til þeir fá fleiri byrgðir.!!
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby bebecar » Fri 16. Jan 2004 08:54

Eins og áður þá er þessi gremja gagnvart risunum þremur mjög skiljanleg og sérstaklega í ljósi þess að þeir hækka strax aftur um leið og bensínið er búið hjá Atlantsolíu.

En ég vil bara minn á að Orkan hefur ekki tekið þátt í þessu og þeir eru ennþá lægstir og hafa alltaf verið :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Haffi » Fri 16. Jan 2004 08:56

Hættu þessum BJÉÉÉVÍTANS orku/shell áróðri !!!!!!!! :twisted: :twisted: :twisted: :twisted: :twisted:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby bebecar » Fri 16. Jan 2004 08:59

Bara að benda á staðreyndir, mér finnst menn bara gleyma því sem Orkan hefur gert fyrir markaðinn því samkeppnin hefur farið fram þar. Þó Orkan sé nýlega kominn í eigu Skeljungs þá var Orkan í rauninni fjórða félagið á markaðnum og stýrt sem slíku. þar hefur ekkert breyst við eigandaskiptin.

Þeir eru ennþá ódýrastir og verða alltaf OG voru með lægra verð en Atlantsolía áður en þeir byrjuðu um sem nemur tveimur krónum.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Haffi » Fri 16. Jan 2004 09:08

VIVA LA ATLANTSOLÍA!!!
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Jss » Fri 16. Jan 2004 09:09

Af hverju getið þið ekki lesið það sem bebecar er að segja án þess að hugsa það eins og þetta sé bara út af vinnustað hans, þetta sem hann er að segja finnst mér ólitað af vinnustað hans en auðvitað má alltaf misskilja allt en hann er búinn að færa góð rök fyrir því sem hann heldur fram varðandi Orkuna. Það er margt til í því sem hann segir um þetta og að sjálfsögðu á ekki að hrauna yfir hann bara út af því hjá hverjum hann vinnur. :D
Last edited by Jss on Fri 16. Jan 2004 09:11, edited 1 time in total.
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Svezel » Fri 16. Jan 2004 09:10

Þetta er nú dálítið skítt....

Af hverju er AO ekki með alvöru bensín, það er einokun á 99+okt bensíni :o
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Haffi » Fri 16. Jan 2004 09:12

Þessi maður er ekkert ólitaður ........ hann er alveg kolbikarsvartur!!

En ég er sjálfur reyndar Orkumaður útí eitt og verzla bara við orkuna :)

Er það er ekki bíltúrsins verðugt að keyra lengra en 7km á þessari dós sem ég er á og það er ekki lengra en 10km á milli orkustöðva :D
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby bebecar » Fri 16. Jan 2004 09:39

Haffi, þú átt nú ýmislegt ólært í siðferðismálum. Það vill svo vel til að ég nokkuð vel lærður í siðfræði og heimspeki og þetta er ekki spurning um að vera kolbikasvartur (once you go black you don't go back segja þær víst :wink: ).

Nánast allir hér hafa litið viljandi framhjá þeirri staðreynd að Atlantsolía breytti engu á markaðnum, verðið í sjálfsafgreiðslu var lægra hjá Orkunni.

Eina sem breyttist var að stóru félögin þrjú lækkuðu verð hjá sér, ég skil reyndar ekki afhverju þau voru að því vegna þess að stöð með fullri þjónustu á engan séns í sjálfsafgreiðslustöð.

Og svo má ekki gleyma því að ég er auðvitað neytandi sjálfur og versla þar sem það er hagstæðast fyrir mig hverju sinni. Ég kaupi reyndar mjög mikið V-power en þess á milli 98 okt hjá Orkunni á Eiðistorgi.

En ég er líka minnugur gagnrýninnar sem Skeljungur fékk fyrir einu nýjungina á bensínmarkaðnum þegar þeir komu með V-Power, það var bara fyndið að sjá alla hardcore bílastrákana blammera þá fyrir þetta og halda áfram að nota 95 okt!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Jói » Fri 16. Jan 2004 10:19

Voðalega er þetta alltaf skrýtið á Íslandi hvað hlutirnir eru oft málaðir svart/hvítt. Annaðhvort er fólk með eða á mót, það virðist vera enginn millivegur hjá sumum.

Það sem bebecar er bara að segja, sem er auðvitað alveg rétt, að með komu AO þá gerðist ekkert stórkostlegt, hann er þó ekki að segja að þeir mættu fara fjandans til. Hann er ekki að segja að hann hefði ekki viljað fá AO á þennan markað. Hann er ekki að segja að hann mundi aldrei kaupa bensínið frá þeim. Hann er einfaldlega að benda á staðreyndir, en auðvitað má það aldrei, því hann verður að vera algjörlega þeim megin við strikið að hann hati stóru bensínfyrirtækin.

Er framtak AO jákvætt? Að sjálfsögðu, enda eru allir hérna sammála um það, sama hvort þeir séu svartir eða hvítir.

Ég hef löngum reynt að kaupa bensín þar sem það er ódýrast, AO er rétt hjá vinnunni og Orkan er rétt hjá mér á leiðinni úr skólanum og úr vinnunni. Ég ætla ekki að kaupa BARA hjá AO til þess að láta þá taka mig í rassgatið. Ég hugsa bara sem almennur neytandi og ætla að taka þá í rassgatið sem ekki stuðla að heilbrigðri samkeppni. Ef AO er mest lægsta verðið og ég á þar leið hjá og vantar bensín, þá ætla ég að umbuna þeim með því að kaupa af þeim. Ég á einnig bensínfrelsi hjá orkunni og ekki skil ég hvernig er hægt að fylla á bílinn sjálfur og lykta eins og bensínstöð, ef menn kunna ekki að pota stúti í gat, þá vorkenni ég þeim mönnum. :wink:

Það er því miður þannig, að bensínmarkaðurinn, í þessar mynd, er kornungur og óþroskaður. Það munu koma fleiri litlir aðilar með tímanum. Fyrir 1992 var bensínmarkaðurinn þannig að ríkið sá um ÖLL kaup á allri olíu og verðlagsráð (ríkið) réði verðinu. Þá keypti ríkið mjög slakt bensín frá Sovétríkunum sem var ef ég man rétt 89 oktan. Á þeim tíma varð maður bara að gjöra svo vel og kaupa nákvæmlega sama bensínið á nákvæmlega sama verði, alveg sama hvaðan þú keyptir bensínið. Auk þess sem að taka þarf MARGA hluti inn í heldur en bara verðið, t.d. kaupmátt, sem einmitt hefur verið að aukast síðustu árin. Ennfremur má taka tillit til verðbólgunnar sem var mikil hér á árum áður, þá tók verðlagsráð tillit til verðbólgunnar í hækkunum á bensínin og t.d. 1983 var verðbólgan rúm 80 %, þá hefur bensínið hækkað um 80 % á milli ára.

Það mun taka ríkið smá tíma að losa sig úr þessum markað, eftir að hafa stjórnað honum beint í mörg mörg ár. Yfirvöld virðast samt, því miður, ekki sýna mikið sem bendir til þess að þeir séu að "frelsa" bensínmarkaðinn á næstunni undan tökum ríkisins. En það mun gerast, það er í raun óumflýanlegt, alveg eins og gerðist og mun gerast með áfengið.
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby Logi » Fri 16. Jan 2004 10:54

Ég hef nú ekki tekið þátt í þessari umræðu hingað til, enda hefur mér ekki þótt ástæða til að bæta neinu við þetta. En það er gott að sumir skrifa hér á málefnalegu nótunum og rökstyðja skrif sín.

Það er ekki nóg að koma með fullyrðingar, menn verða líka að geta staðið við þær :!:
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby bebecar » Fri 16. Jan 2004 11:39

Takk Jói... þetta var nákvæmlega það sem ég var að reyna að segja. Það hlustar bara engin á mig :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests