pakkning í bremsudælu E34 520

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

pakkning í bremsudælu E34 520

Postby Bjarkih » Wed 03. Jun 2009 22:18

Það lekur s.s. meðfram stimplinum hjá mér þannig að ég þarf að finna pakningar á morgun. Er eitthvað mál að skipta um þetta og er eitthvað sem ber að varast? BTW pakningin er ansi föst í dæluhúsinu, er eitthvað "trikk" við þetta? :oops:

Image
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: pakkning í bremsudælu E34 520

Postby Alpina » Wed 03. Jun 2009 22:23

Þetta er ,,, stundum ,, bras

Þarft að taka dæluna úr ,, upp á borð,, stimpilinn úr,, og svo pakkninguna og þéttínguna,,

stimpillinn er eflaust ryðgaður osfrv,,

Gott er að blása stimpilinn úr,, en settu eitthvað fyrir svo að hann fara ekki alveg úr með látum,,

þegar þetta er sett í,, er hringurinn settur i raufina ,,inn í dælunni,, svo er gúmmi þéttingin sett á dæluna ,, en áður verðurðu að búin að smokra henni yfir stimpilinn og svo bleytirðu þetta með bremsuvökva (( eilítið )) svo þarftu að vera nettur og ýta stimplinum inn ...

info 6962021
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: pakkning í bremsudælu E34 520

Postby crashed » Thu 04. Jun 2009 00:00

eins og ég gerði þetta á mínum gamla E36 þá reif ég dæluna úr og bremsuklosana úr henni og notaði bremsuna til að smokra henni útt semsagt afteingdi hana ekki frá bremsukerfinu bara stíga rólega á pedalann og það virkaði fínt þú nátúrulega notar tíman og skyftir um allan bremsuvökva á bílnum í leiðini
Róbert Már Róbertsson
BMW 740 E38
BMW 325 E36 "91 (SELDUR)
Gsm: 6150628
crashed
Getawaybílstjóri
 
Posts: 939
Joined: Tue 10. Jul 2007 22:13
Location: njarðvík

Re: pakkning í bremsudælu E34 520

Postby Axel Jóhann » Thu 04. Jun 2009 12:18

Þetta er smá dund en ekkert mál þannig séð.


Uppgerðarsett færðu í N1 og kostar alls ekki mikið. 440-1000


Þeir eiga líka til nýja stimpla á spottprís.

Til að ýta stimplinum úr þá geturðu skrúfað endann af koppafeitissprautu og skrúfað hann ofaní þar sem bremsurörið kemur inní dæluna.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: pakkning í bremsudælu E34 520

Postby Bjarkih » Thu 04. Jun 2009 16:20

Stimpillinn er nú þegar kominn úr, pakningin er hinsvegar frekar föst, og ég er hræddastur við að rífa hana og skilja eitthvað eftir. Er búinn að rífa dæluna undan og ætla að skipta um loftunar ventilinn í leiðinni. Sá sem er á er haugryðgaður.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 66 guests