Danni wrote:
Þegar bróðir minn var að kaupa sinn E36 þá fór ég með honum til Sjóvá að sjá um tryggingamál. Ég sagði að við vildu setja bílinn í kaskó en konan var nú frekar treg á því að samþykkja það. Bíllinn er 1995 árgerð, sama og PO-700 og það er komið ár síðan að við vorum að standa í þessu. Ég var það heppinn að það var önnur kona laus á skrifborðinu við hliðiná sem að sagði henni að samþykkja kaskó, hún gat séð bílinn fyrir utan og þetta er ekkert slæmur bíll. Síðan spurðist ég fyrir um þetta hvernig það er ákveðið hvort að gamlir bílar fá kaskó eða ekki og mér var sagt að oftast er nóg að fá starfsmann til þess að skoða bílinn og meta hvort að þetta er einhver algjör drusla eða hvort þetta er góður bíll. Síðan sagði hún mér að það er bara body-ið sem er skoðað þannig ef bíllinn lýtur vel út ætti ekki að vera mikið vesen að fá kaskó í gegn, þó að þetta gæti verið algjör haugur undir.
En þetta er það sem mér var sagt og ég hef í rauninni enga ástæðu til að rengja þetta, en mæli samt með því að taka þessu með fyrirvara þar sem það getur vel verið að þetta sé öðruvísi núna eða þá bara var aldrei svona....
Gunni í VÍS leit út um gluggan og horfði á '96 hiluxinn minn og sagði svo .. jaaaa jájá. Þannig að þetta eru augljóslega geðþóttaákvarðanir.