Bíllinn byrjaði að hiksta og drap svo á sér...

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Bíllinn byrjaði að hiksta og drap svo á sér...

Postby Beorn » Thu 15. Jan 2004 17:43

Ég var að keyra á Breiðholtsbrautinni áðan og þá fór bíllinn (518, e-34, 1991) allt í einu að hiksta og drap svo loks á sér, lýsir sér eins og þegar bíllinn er að verða bensínlaus, en samt er nóg bensín á tankinum. Það er rafmagn á bílnum og ef ég reyni að starta, þá næ ég að kveikja á bílnum og hann hikstar og drepur strax sér. Ég lét svo draga mig heim og þar er bíllinn núna, öll góð ráð þegin, veit ekkert hvað þetta getur verið.
User avatar
Beorn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 74
Joined: Fri 21. Mar 2003 18:07
Location: Reykjavík

Postby Moni » Thu 15. Jan 2004 17:45

Þetta getur verið sífluð bensínsía eða léleg kerti, það er svona það fyrsta sem mér dettur í hug...
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby Beorn » Thu 15. Jan 2004 17:53

ok kertin kosta væntanlega um 10.000 og ekkert vandamál að skipta um, en er vesen að skipta um bensínsíu og hvað kostar það c.a.?
User avatar
Beorn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 74
Joined: Fri 21. Mar 2003 18:07
Location: Reykjavík

Postby Logi » Thu 15. Jan 2004 18:04

Kertin eru alveg örugglega ekki svo dýr! Þau ættu að kosta max 500 kr. stk. Nema þú viljir eitthvað UBER!
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Moni » Thu 15. Jan 2004 18:06

'Eg veit ekki með bensín síuna, getur ekki verið það dýrt...
En ertu viss um að kertin séu svona dýr, ertu að kaupa einhver spes kerti???
'Eg kaupi allavega ekki kerti á 2500 stykkið, kannski er ég bara að kaupa eitthvað drasl, en hver veit 8)
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby Beorn » Thu 15. Jan 2004 18:11

nei ég sagði nú bara svona, með því að segja að þau kostuðu 10.000 meinti ég að þau kosta slikk
User avatar
Beorn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 74
Joined: Fri 21. Mar 2003 18:07
Location: Reykjavík

Postby Moni » Thu 15. Jan 2004 18:12

já það hljómar betur, ég kaupi kerti sem kosta rétt undir 1000 kallinum stykkið
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby Just » Thu 15. Jan 2004 18:15

Þetta nákvæmlega sama gerðist hjá mér fyrir alls ekki löngu og það kom í ljós að bensínsían var stífluð, djöfull var ég feginn!! :)
BMW 528i e28 - SELDUR
Just
Kassabílstjóri
 
Posts: 177
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:36

Postby Moni » Thu 15. Jan 2004 18:38

já ég mundi athuga bensínsíuna, það er sennilega húna þar sem þetta er ekki blöndungsbíll með stíflaðan blöndung...
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby Beorn » Thu 15. Jan 2004 21:22

ok þakka ykkur fyrir þetta, ég læt líta á þetta á morgun
User avatar
Beorn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 74
Joined: Fri 21. Mar 2003 18:07
Location: Reykjavík

Postby Prawler » Fri 16. Jan 2004 00:17

Sæll
Ég lenti í samskonar vanda með bílinn minn sem er 518 árg.90
Bendi þér á að skoða þráðinn "518I gangvandamál"
Ætla ekki að hræða þig en málið með bílinn minn var það að kassi undir tölvuna var ekki nógu þéttur og það lak vatn þar inn og komst inn á tölvuna og eyðilagði hana. Fékk nýja tölvu notaða á 15.þ

Annars getur þetta líka verið "Idle valve regulator" það er lítið stykki sem tengist við soggreinina (held ég) og ekkert mál að taka hann af og það þarf stundum að hreinsa hann. getur verið fullur af sóti og skít.
það voru kominn upp einhver gangvandamál í greyjinu um daginn og ég tók þetta dót úr og þreif það með eyrnapinna og WD40 :wink: og bíllinn hefur ekki slegið feilpúst síðan.

Vona að þetta sé ekki alvarlegt
User avatar
Prawler
Kassabílstjóri
 
Posts: 145
Joined: Mon 31. Mar 2003 11:04

Postby Beorn » Fri 16. Jan 2004 17:07

já það er greinilega ýmislegt sem getur verið að, svo er verið að segja mér að þetta geti verið bensíndælan, en þeir á smurstöðinni klúðruðu þessu og geta ekkert gert (skipta um bensínsíu) fyrr en á mánudaginn, en ef það er einhver hérna til í að kíkja á bílinn má hann endilega hafa samband í síma 695-1432
User avatar
Beorn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 74
Joined: Fri 21. Mar 2003 18:07
Location: Reykjavík

Postby iar » Fri 16. Jan 2004 17:23

Minn gamli (E36 316i '92) lenti í svipuðu og það var einmitt bensíndælan. :?
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Beorn » Fri 16. Jan 2004 18:40

hvar léstu laga þetta með dæluna og hvað kostaði það?
User avatar
Beorn
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 74
Joined: Fri 21. Mar 2003 18:07
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Fri 16. Jan 2004 18:47

Tengdu bensíndæluna í 12v og sjáðu hvort hún dæli með því að taka eitthvað rör úr sambandi framí vél, bensínrör að sjálfsögðu og rör sem kemur frá tanknum. Ef það kemur bensín fram að vél þá ætti sían og dælan að vera í lagi. Ef þú heyrir í bensíndælunni en ekkert bensín kemur fram þá gæti sían verið stífluð. Svo gæti bensíndælu relay'ið verið eitthvað að klikka.
Það á ekki að vera efitt að skipta um bensínsíu í e34! Taka öryggið fyrir bensíndæluna úr sambandi og láta bílinn drepa á sér vegna bensínleysis. Gert til að fá sem minnst bensín út um allt. Á ekki við í þínu tilfelli þar sem bíllinn fer ekki í gang. Svo er hún þarna undir bílnum aftarlega farþega megin, að ég held!
Athugaðu hvort kertin séu að gefa neista, prófaðu alla þræðina. Ef svo er þá er kveikjan og háspennukeflið í lagi.
Ólíklega einhver kaldræsibúnaður sé bilaður ef þetta gerðist í akstri. Eftir margar tilraunir til að starta bílnum getur þurft að hlaða rafgeyminn. Kerti eru ekki dýr t.d. m.v. útselda vinnu á verkstæði!
Að lokum væri gott að prófa annan tölvuheila, en það getur reynst erfitt ef maður þekkir engann sem á eins bíl.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 27 guests