by Jói » Fri 16. Jan 2004 11:38
Það þarf ekki kjarneðlisfræðing til að sjá að því stærri og kraftmeiri bílar því minni er eyðslan þegar hraðinn meiri.
Renault Clioinn minn var best að eyða þetta 7-7,5 l innanbæjar og verst kannski 8,5 l á 100 km. En utanbæjar var eyðslan um 5-6 l á 100 km. Renault og franskir bílar almennt finnst mér eyða frekar mikið miðað við stærð, kraft og eyðslu samkeppnisaðila.
Einnig hef ég verið á VW Polo 2 dyra 1.0, VW Golf mk4 1.6 og VW Fabia 4 dyra 1.4. Það er satt hjá Bebecar, ef einhver hélt að smábílar eyddu engu, þá er það hér með opinberað að það er misskilningur. Þessi Polo eyddi t.a.m. 3-4 l á 100 km á milli RVK til Akureyrar.
Smá hugleiðing: Kraftlaus reykingarmaður í engu formi tekur virkilega á þegar hann fer upp stiga 6 hæðir en maður í toppformi finnur varla fyrir því. Það nákvæmlega sama á við um bíla. Smábílarnir eru kraftlausir og þurfa að taka á ef þeir ætla fram úr, fara upp brekkur og ná miklum hraða. Stóru kraftmiklu bílarnir finna ekki eins mikið fyrir "áreynslunni", það tekur þá minni tíma og reynir minna á hjartað/vélina. En ef maður keyrir smábílana eins og til þeirra er ætlast (sem er bara lágmarksakstur) þá er eyðslan svo mun mun minni en Bimmarnir geta látið sig dreyma um, alveg sama hvort það sé innanbæjar eða utanbæjar.
Það er afskaplega spaugilegt að lesa á þessu spjalli að verið sé að bera saman BMW 323 e36 og VW Polo í sambandi við bensíneyðslu. Það er eins og að bera saman Formúla 1 bíl við BMW 323.
Þótt um sé að ræða "mikinn hraða" á hraðbrautum í Frakklandi þá skiptir það litlu máli. VW bílarnir eru auðvitað gerðir í Þýskalandi og ráða við miklu hærri hraða en tíðkast hérlendis. Það sama á við um Renault og franska bíla sem eru líka til þess gerðir að ráða við hraðbrautir í Frakklandi. Ef haldinn er stöðugur 140 km hraði (hraðinn á hraðbrautum er ALLTAF stöðugur sama hversu kraftmikill bíllinn er), þá er það alls ekkert stórkostleg bensíneyðsluaukning fyrir smábíla.
Last edited by
Jói on Fri 16. Jan 2004 11:44, edited 1 time in total.