Já ég veit að þetta er bmwkraftur, en það eru eflaust einhverjir hérna sem eru áhuga á þessum bílum
Þetta faratæki er s.s í eigu frænda míns, upphaflega vildi ég kaupa hann, en var ekki alveg að týma að leggja út svona pening fyrir bíl eins og staðan var orðin í október í fyrra. Svo úr varð að frændi minn keypti hann, og er ég mjög ánægður með það, þar sem hann er kominn á sextugsaldurinn og fer með hann eins og brothættan vasa
Bíllinn sjálfur er gríðarlega heill og góður, ekki einn ryðblettur, mjög þéttur og góður í akstri, skiptingin silkimjúk, og hann er ekinn rétt rúmlega 156.000, sem er nú ekki mikið miðað við 1991.árgerð
En hann hafði þann galla að lakkið var orðið frekar illa farið. s.s orðið mjög skýjað, mikið af kústarispum, og furðulegir svartir blettir voru á honum inná milli (já bíllinn er svartur, en var orðin hálf grár af upplitun)
Svo ég ákvað að taka bílinn í gegn fyrir hann gegn því að ég fengi að rúnta dágóða stund á honum, sem hann að sjálfsögðu samþykkti
Það sem ég gerði fyrir hann, er að ég þreif hann allan hátt og lágt að innan og utan, massaði lakkið á honum (var örugglega tvo tíma bara að massa hann), svo tók góður klukkutími við að þrífa allan massan af honum, og ná úr öllum rifum, svo bónaði ég hann með mothers bóni, og svo fyrir final toutch, að þá lét ég caranouba wax á hann (örugglega vitlaust skrifað) frá mothers.
Og útkoman varð sú að hann er orðinn eins og nýr, fyrir utan smá grjótkast á framstuðara og húddi, og er ég bara hæst ánægður með útkomuna
Ég hafði aldrei áður keyrt blæjubíl svo þetta var alveg ný upplifun fyrir mig að rúnta um á svona græju, ótrúlega skemmtileg tilfinning sem fylgir því að keyra með blæjuna niðri í góðu veðri, og þó að þessi bíll sé "ekki nema" um 240.hö að ég held, að þá nýtir hann þau afar vel að mínu mati, og svo kom bensíneyðslan mér skemmtilega á óvart, því þó maður hafi verið að gefa honum vel inn á köflum (enginn glæfraakstur þó) að þá var eyðslan ekki í nema um 14 sem mér fynnt bara fínt fyrir svona sjálfskiptan hlunk
En fílingurinn að keyra þennan bíl fyrir utan blæjuna, er svipaður að mér fynnst, eins og að keyra BMW 850, báðir með langt húdd, maður situr svipað neðarlega, aflið er svipað, báðir frekar massífir og þéttir í akstri, bremsurnar frekar þungar, og svörunin á bensíngjöfinni er svipuð....
Þessi bíll er algjör head turner, enda um glæsilegan bíl að ræða, og það er frekar fyndið að sjá marga bíla í baksýnisspeglinum vera að keyra heldur greitt, bara til þess eins að geta skoðað bílinn betur
En nóg komið af kjaftæði, látum myndirnar tala, þær gefa honum kannski ekki nógu góð skil, þar sem þetta er bara venjuleg "party" myndavél, og sést kannski ekki alveg hversu slæmt lakkið var fyrir, en ég læt þær bara flakka
eins og sést að þá var lakkið frekar slæmt á húddinu, og var það svipað á öllum bílnum, þó kannski ekki alveg jafn slæmt..



Svo auðvitað þurfti maður að pakka blæjunni inn fyrir mössunina (harð toppurinn er bara inní skúr yfir sumarið)

Svo hérna er hann búinn. Ekki bestu myndir í heimi, en sýna hann vel

húddið orðið vel shiny







Og svo ein að innan...

Hann á aðrar miklu flottari 18" felgur á hann, honum vantar bara ný dekk á þau, þar sem þau gömlu eru orðin frekar slitin......
Eftir þennan dag er ég orðinn gjörsamlega ástfanginn af þessum bíl, og er hann kominn ofar en Corvette á lista yfir þá bíla sem mig langar hvað mest í, og á ég forkaupsrétt á þessum bíl
Vonandi að einhver hafi haft gaman af að skoða þetta
