Fyndið að sjá gagnrýni á listaelítu - líklega út af tónlistarhúsinu.
Við aðstæður eins og eru í dag er eðlilegast að reyna að halda uppi grunnþjónustu og það mætti vel draga saman seglin í menningargeiranum en í því sambandi má þó nefna að íþróttafélög og tengd starfsemi (sem flokkast varla með grunnþjónustu neitt frekar en menning) er MARGFALT stærri hýt. Annað hvort styður ríkið við bakið á mismunandi afþreyingarþáttum eða sleppir því og lætur notendur um að borga þetta eftir notkun (mínir skattpeningar fara t.d. í að styrkja allar aðrar íþróttir en þær sem ég hef áhuga á að stunda - akstursíþróttir!)
Það er líka dálítið vafasamt að segja upp ríkisstarfsmönnum því yfirleitt er ríkið notað til að draga úr samdráttaráhrifum með því að taka hluta vinnuaflsins til sín. Ríkisstarfsmaður sem fær uppsögn er bara tilflutningur á kostnaði, ríkið borgar jú atvinnuleysisbæturnar líka.
Stjórnin þarf að taka ákvörðun um hvað á að gera, lýsa því fyrir fólki og svo vinna eftir aðgerðaráætlun - þetta er krýsustýring 101
Vegna erfiðrar stöðu þjóðarbúsins ættu nánast öll plön að miða að því að auka gjaldeyristekjur, fleiri orkufrek fyrirtæki, betri skilyrði fyrir ferðaþjónustu, kvikmyndagerð, skattaívilnanir til fyrirtækja sem eru til í að flytjast hingað o.s.frv. En jafnframt er alveg óendanlega mikilvægt upp á framtíðina að gera að ekki sé skorið niður í menntun (og þarna spilar menningarstarf mjög mikilvægt hlutverk) því af góðu menntunarstigi og gjaldeyrismiðaðri atvinnulífsstefnu koma framtíðartekjurnar til að vinna sig úr krísunni.
En svo má fólk bara ekki gleyma því að það er fullt af löndum í kringum okkur þar sem ástandið er verrar fyrir fólkið í landinu... það er gríðarlega hátt atvinnleysi t.d. á Spáni en það má vel vera að fólki sé atvinnuleysið bærilegra í góðu veðri.
Grasið er ekkert endilega grænna hinu megin - hér í DK voru fyrir næstum tveimur árum síðan 20% fjölskyldna með húsnæðisskuldir umfram eignir. Þið getið ímyndað ykkur hver staðan er í dag (það þorir bara engin að tala um þetta!). Atvinnuleysi eykst mjög hratt og á meðan allt var í lagi tók það samt iðulega um ár að finna vinna, þrátt fyrir lítið atvinnuleysi á danskan mælikvarða.
Ég skil vel að fólk vilji forða sér þegar allt brennur ofan af því. Það er bara skynsamlegt að gera sér hóflega væntingar þegar flutt er og alls ekki fara upp á von og óvon út. Fólk sem lærir erlendis núna safnar sér gríðarlegum skuldum í námslánum þannig að það er eins gott að námið sé vandað.
Og hækkun bensínskatts - auðvitað er það ekki gott. En það þarf að hækka skatta mikið og þetta er skattur sem er pjúra neyslustýring. Það er hægt að hjóla, finna sér metan bíl, nú eða breyta bensínháknum fyrir LPG.
Auk þess, þetta skapar hvað tæpa 3 milljarða í tekjur. Þá eru bara 47 eftir.... you ain't seen nothing yet!
Þetta minnir mig reyndar á annað, hér í DK eru skattar nefnilega svo háir að það er eiginlega ekki hægt að hækka þá mikið meira... hvað gera menn þá til að draga úr neyslu? Meira atvinnuleysi!