Zed III wrote:
sh4rk wrote:
Ég mæli ekki með þeim í Klettagörðum eftir að þeir skoðuðu E23 bílinn hjá mér eða skoðuðu henn ekki límdu bara grænan á hann nánst strax og sögðu að pústið væri ónýtt sem var ekki, hafði látið þá í bjb smíða árinu áður þannig að það var í fínu lagi
Þeir eru óendanlega súrir þarna. Ég fékk næstum því endurskoðun því þokuljósatengið fyrir kerruna var ekki tip topp, allt annað virkaði flott.
Það er ekkert þeirra að ákveða hvort þú færð endurskoðun eða ekki.
Ef þú skoðar skoðunarvottorðið vel sérðu þetta "punktakerfi" sem að er farið eftir.
Ef að er sett útá eitthvað eiga menn ekki að vera að röfla yfir því að skoðunarmaðurinn hafi verið harður á þeim.
Mín persónulega skoðun er sú að sú aðalskoðun sem er hérna er enganveginn nægilega hörð og finnst mér vanta uppá eftirlit með þessum skoðunarstöðum eins og voru úta seltjarnanesi þar sem var bara einn dúddi sem enginn fylgdist með.
Á mínum stutta ferli í bílaviðgerðum hefur maður séð stóran skara af bílum sem eru mjög nýlega komnir úr skoðun sem vægast sagt teljast stórhættulegir. Ónýtir bremsudiskar , bremsuleysi , spindlar , stýrisendar , styrkleikamissir , höggdeyfar. Allt hlutir sem þurfa að vera í lagi. Eitt Skipti var ég kominn með viðgerðarkostnað á svona basic hlutir , bremsur , styrkleikamissir , dempara osfrv uppá 250þús og bíllinn hafði tveimur mánuðum áður runnið athugasemdalaust í gegnum skoðun.
Ég er ekki að segja að við þurfum að ganga eins langt og TUV kerfið er með þýskaland þó virkilega megum við taka þá að hluta til fyrirmyndar.
Til að undirstrika þessa vitleysu sem hefur gengið á í þessum málum á Íslandi breyttu þeir síðastliðin áramót skoðunarreglum það er að nýjir bílar þurfa ekki að koma í skoðun fyrr en að fjórum árum liðnum og síðan tvö ár og síðan aftur tvö ár.
Maður sér það í bílaviðgerðum í dag að nýjir bílar í dag eru ekki eins og nýjir bílar fyrir 10 árum efnisvalið í jafnvel dýrustu bílum er orðið lélegra og bitnar það verulega á slithlutum svosem spindlum og fóðringum í undirvagni.
Því getur það talist fáravitleysa að bíll ,,,,, eftir 8 ár hafi einugis tvisvar gengið til aðalskoðunar.
Ísland lengi lifi