Hvernig eru E90 320i með N46B20 ?

Hér skal spjalla um BMW.

Hvernig eru E90 320i með N46B20 ?

Postby Svessi » Sat 30. May 2009 02:16

Loksins hefur okkur bræðrunum tekist að smita pabba karlinn af BMW-bakteríunni og hann er mjög líklega að fara fjárfesta í sínum fyrsta BMW.

Við erum búnir að finna E90 320i með N46B20 (150hp, 200nm) með 6 þrepa sjálfskiptingu.

Ég óska eftir öllum upplýsingum sem þið getið haft, eitthvað sem þið vitið af sem ég ætti að tjékka á áður en við gerum tilboð í bílinn, einhverjar innkallanir sem maður ætti að vita af,
Hvernig eru þessar vélar? Kom mér dálítið á óvart að 2 lítra vélarnar væru ornar 4 cylendra, vissi ekki af því, er ekki eðlilegt að það sé pínulítið grófur gangur í lausagangi?
Erum við ekki að tala um eyðslu innannbæjar í kringum 11-12 lítra? Hvað með á langkeyrslu?

Bara endilega allar upplýsingar sem þið hafið, góðar eða slæmar.

Þetta er bíll sem hefur komið á run-flat dekkjum og því er ekkert varadekk í bílnum, en núna er hann bara á venjulegum dekkjum. Er pláss fyrir varadekk í skottinu, semsagt undir teppinu þar sem varadekkið á að vera? Eða er hólfið eitthvað öðruvísi hannað? Var sjálfur ekkert búinn að kíkja á þetta almennilega.
Sverrir Már

Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93

User avatar
Svessi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 446
Joined: Wed 16. Feb 2005 23:49

Re: Hvernig eru E90 320i með N46B20 ?

Postby SteiniDJ » Sat 30. May 2009 03:50

Við áttum einusinni svona E90, var þessi organic steingrái sem fluttir voru inn eins og enginn væri gærdagurinn. Þrátt fyrir það var þetta virkilega góður bíll sem leyndi á sér.Var að eyða 11.4 l/100 innanbæjar og mikið minna utanbæjar (6 gíra bíll). Hann var alveg drepleiðinlegur á runflat dekkjunum, en ég man ekki hvernig það var með pláss fyrir aukadekk.

All in all þá eru þetta geggjaðir bílar. 8)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Hvernig eru E90 320i með N46B20 ?

Postby Zatz » Sat 30. May 2009 07:41

u.þ.b 70% af ásinum er frá E90 bílunum.

Ég held að það sé sama vél í ásinum (118i, +07' 143hp 190nm tog(held að hún heitir N45B20) Hann er að eyða 9 í bænum og kringum 7 í langkeyrslu. Ásinn er töluvert léttari en 320. Svo held ég að það hafi verið í þessum vélum að knastásskýnari? bilar og rangt magn af lofti/bensíni fer inní vélina. Mæli með að nota bara drive innannbæjar eða þá sjötta gír á +70kmh annars er 6 þrepa sjálfskiptingin algjör snilld ef þú villt ferðast eitthvað hraðar :wink:

EDIT: Ég er ekki alveg klár á runflat dekkjunum en ég held að þau eru mikið stífari en þessi venjulegu. Á ásinum er ekkert varadekk og ekkert pláss fyrir dekk undir mottunni í skottinu því að rafgeymirinn er þar :lol: annars eru þetta mjög þéttir og góðir bílar.
Og ekkert sem annað sem hefur bilað við 16þkm keyrslu :angel:

:lol: tekur honum ekki langan tíma að komast uppí VMAX :roll: æí knó
Zatz
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 486
Joined: Sat 19. Apr 2008 19:36
Location: HFJ

Re: Hvernig eru E90 320i með N46B20 ?

Postby billi90 » Sat 30. May 2009 12:05

Ég er búinn að vera frekar mikið á E90 320i(samt 170hp bílnum) enn mér finnst yndislegt að keyra þá.
Eru ágætlega kraftmiklir enn hljóðlátir.
Eyðslan hjá mér er svona í kringum 9-10 í innanbæjarakstri(hef maður er ekki að gefa honum rosa mikið inn).
Veit ekki um neitt svona í fljótu bragði sem böggar mig hann, nema kannski að maður þarf að snúa marga hringi volume takanum til að hækka í græjunum. haha
Image
ImageBMW 316i Touring '03 - seldur
ImageBMW 316i Compact '00 - seldur
User avatar
billi90
Kassabílstjóri
 
Posts: 231
Joined: Sun 19. Apr 2009 20:16

Re: Hvernig eru E90 320i með N46B20 ?

Postby markusk » Sat 30. May 2009 14:41

billi90 wrote:Ég er búinn að vera frekar mikið á E90 320i(samt 170hp bílnum) enn mér finnst yndislegt að keyra þá.
Eru ágætlega kraftmiklir enn hljóðlátir.
Eyðslan hjá mér er svona í kringum 9-10 í innanbæjarakstri(hef maður er ekki að gefa honum rosa mikið inn).
Veit ekki um neitt svona í fljótu bragði sem böggar mig hann, nema kannski að maður þarf að snúa marga hringi volume takanum til að hækka í græjunum. haha


Ég á líka E90 320i og ég er mjög sáttur með hann. Búinn að eiga hann næstum í eitt ár. En ég er sammála með volume takkann, hann er einfaldlega ekki að gera sig. Þess vegna er gott að vera með takka líka í stýrinu :)
F20 BMW 118d '14
E90 BMW 320i '05 - SELDUR
User avatar
markusk
Kassabílstjóri
 
Posts: 109
Joined: Tue 24. Jun 2008 18:49

Re: Hvernig eru E90 320i með N46B20 ?

Postby billi90 » Sat 30. May 2009 15:04

markusk wrote:
billi90 wrote:Ég er búinn að vera frekar mikið á E90 320i(samt 170hp bílnum) enn mér finnst yndislegt að keyra þá.
Eru ágætlega kraftmiklir enn hljóðlátir.
Eyðslan hjá mér er svona í kringum 9-10 í innanbæjarakstri(hef maður er ekki að gefa honum rosa mikið inn).
Veit ekki um neitt svona í fljótu bragði sem böggar mig hann, nema kannski að maður þarf að snúa marga hringi volume takanum til að hækka í græjunum. haha


Ég á líka E90 320i og ég er mjög sáttur með hann. Búinn að eiga hann næstum í eitt ár. En ég er sammála með volume takkann, hann er einfaldlega ekki að gera sig. Þess vegna er gott að vera með takka líka í stýrinu :)


jamm...eg nota hann bara...haha...eina sem eg fann svona í fljótubragði...bara skemmtilegir bílar!
Image
ImageBMW 316i Touring '03 - seldur
ImageBMW 316i Compact '00 - seldur
User avatar
billi90
Kassabílstjóri
 
Posts: 231
Joined: Sun 19. Apr 2009 20:16


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 8 guests