Svezel wrote:
Ég ætlaði nú ekkert að fara neitt dýpra í þetta en ef menn eru að þrýsta á það þá skal ég spill the beans.
Í fyrra var ég beðinn um að fá bílinn minn á sýninguna en ég var frekar upptekinn í vinnu og persónulegum málum auk þess sem bíllinn var fastur inn í skúr vegna smá breytinga. Áfram var haldið að biðja og mér sagt að þeir yrðu að fá bílinn vegna þess að það vantaði bíla. Þeir sögðust vera tilbúnir að sækja bílinn, bóna hann og græja allt.
Ég kæri mig ekki um að aðrir en ég keyri þennan bíl svo ég sagðist reyna mitt besta að koma bílnum uppeftir en hann væri ekki hreinn svo mér var lofað bóni og bla bla. Jæja ég tek mér smá frí frá vinnu á föstudegi og kem með bílinn. Þá var enginn á svæðinu nema Ingimar svo ég mátti þrífa og bóna bílinn sjálfur en Ingimar hjálpaði mér þó eins og hann gat.
Jæja ég skil þá bílinn eftir spotless og fæ Óskar til að sækja mig því enginn mátti vera að því að skutla mér aftur í vinnuna að vinna af mér fríið. Yfir helgina gengur þetta þennslubull yfir en það reddast allt saman og ég fæ að sækja bílinn eftir helgina.
Það sem stóð eftir var að ég hafði engan áhuga á að hafa bílinn þarna en hann er vældur út úr mér, fæ enga hjálp við þrif eða annað, mátti taka mér frí frá vinnu við að græja þetta og redda mér fari, bíllinn færður í minni óþökk, og svo síðast en ekki síst þá var mér ekki einu sinni þakkað fyrir þetta, fékk jú frítt inn einn daginn en svo bara bless.
skil vel að þetta pirrar, myndi pirra mig jafn mikið.