eitt sem ég skil ekki
afhverju eru íslenskar afurðir að hækka á þessum tímum ?
eftir minni vitund ætti íslensk afurð að reyna halda sínum verðum niðri svo að landinn versli frekar af íslenskum aðilum svo að sá peningur haldist í landinu = minni innflutningur vara og minni útflutningur fjármuna
td.
fyrir kreppu keypti ég 500gr af skyri með jarðabejra og bláberjabragði frá KEA kostaði eitthvern 120kr í bónus
svo fór það að hækka og hækka ég skildi ekki neitt því þetta er íslensk vara en jú sykur í þetta og sumt hækkar , en mestmegnið í þessu er framleitt á íslandi
núna kostar ein svona um 250kall í bónus ég er hættur í dag að kaupa þetta , ef þeir hefðu haldið verðinu niðri væri þetta kannski enn verslað í mina körfu
og td. Hreint KEA skyr er líka búið að hækka og ég er nokkuð viss að nánast allt í það er gert á íslandi og ekki mikið flutt inn
og það er búið að hækka alveg úr 80kr í 130kall , í dag kaupi ég bara hreina mun ódýrara og ekki búið að hækka eins fáranlega mikið og hitt
sama með bjórinn, ef innlendir framleiðendur á Bjór vilja auka sölu á þeirra vöru í samkeppni við hina innflutt bjóra
þá er svarið einfalt reyna lækka verð á sínum aðeins og athuga hvort kúnninn velji þeirra yfir dýra innflutta sullið
bara mínar pælingar , ég er allur á bakvið innlenda framleiðslu og ég vill frekar styðja við það en eitthvað frá dót frá útlöndum , hvort eð er hata okkur allir þar
