Veit ekki, en kannski get ég eitthvað hjálpað, hef keyrt þá nokkra strumpastrætóana og sendibílana.
Þarf aðeins að fá meiri info frá þér.
Hvað ertu að spá í að gera? Og í hvað ætlaru almennilega að nota bílinn?
Info-ið sem ég hef núna er að þú villt 7 sæta bíl, semsagt 6 farþega, rétt? Þetta skiptir dálítið miklu máli, hvort þú ert að tala um 6 eða 7 farþega, 7 eða 8 manna. Getur verið að tala um alveg sitthvora stærðina af bílnum, bara við þetta eina auka sæti. Ertu að fara nota öll sætin, keyra bílinn fullann af fólki á hraðbraut eða villtu bara þessa stærð af bíl?
Villtu bíl sem þú getur verið með full lestaðann af fólki og geta cruizað á 160-180 á hraðbrautinni eða er nóg að geta verið á 110-120?
Svo líka hafa í huga að ef þú ert með 7 manns í bíl, þá ertu að tala um 550-700 kg pakka bara í kjöti, og það er mjög misjafnt hvernig bílar höndla það á 140-150 km hraða.
Eru þetta eitthvað af krökkum eða allt fullorðnir karlmenn?
Þú villt mögulega dráttarkrók. Hvað ætlaru að fara að draga? Stóra kerru með bíl aftaná, eða littla kerru?
Þú ætlar þér greinilega að fara til evrópu.
Ertu að hugsa um að kaupa bílinn hér heima og fara með út, kaupa bílinn úti, eða leiga bíl? Ef þú ætlar að kaupa, hvað má hann kosta, hve gamall og hversu mikið ekinn má hann vera?
Og hvað ertu að spá, villtu bíl eins og Opel Zafira, þar sem þú setur tvo farþega í yoga stellingu og límir þá saman og treður í öftustu sætin eða geturu hugsað þér einhvern strumpastrætó (Dodge Caravan, Kia Carnival) eða sendibíl með sætum eins og VW Caravelle eða álíka.
Villtu bensín eða disel.
Af því sem er í boða hérna heima, þá myndi ég horfa á bíla eins og Dodge Grand Caravan (Grand stendur fyrir lengri gerðina) Plymouth Voyager, Town&Country (Þetta er allt sami bíllinn). Ef þú ætlar þér að nota þetta í einhverja fólksflutninga og hraðbrautaakstur myndi ég ekki horfa á bíl með minna en 3,3 vélinni, helst 3,8. Og mikið af þessum bílum eru með krók. Alveg ásættanleg sæti fyrir 7 manns, ekkert of stórir, höndla ágætlega og eyða ekkert miklu miðað við stærð. Family-an mín er búin að eiga tvo svona, annar var ´97 með 2,4l 150hp 1700 kg með þriggja þrepa ssk og var að eyða í kringum 14-15 innanbæjar og 9 á langkeyrslu. Núna erum við með ´06 með 3,8 215hp 2000 kg með fjögra þrepa ssk og hann er að eyða 15-17 innanbæjar, fer dálítið eftir því hvernig hann er ekinn, og fer í 9,5 á langkeyrslu (miðað við 100-110 km jafnann hraða). Bara svona til viðmiðunnar þá tekur 3.8 bíllinn Toyota Corolla 1.6 í spyrnu. 2,4 bíllinn er með topspeed 160 tómur, en 3,8 veit ekki með top speed en vel hægt að cruiz-a á 170-180 á hraðbraut hálf fullann. Eina sem ég veit að maður þarf að passa sig á er að sjálfskiptingarnar í þessum bilum haf ekki verið neitt rosalega sterkar, í bílum sem hafa ekki fengið almennilega meðferð eða mikið í því að draga þungar kerrur, hjólhýsi hafa ssk farið í sirka 150 þús km.
Getur líka horft á Ford Windstar en það er minn af þeim hérna heima og það eru ekki eins góðir og þægilegir bílar, þeir eyða líka meira.
Svo geturu horft á bíla eins og Hyundai Starex, VW Caravelle, Benz Vito, Renault Trafic, Ford Transit. Gallinn er bara sá að þeir eru eiginlega allir með svo littler vélar hérna heima frá 75-110 hp og eru þetta 1500-2000 kg í eiginþyngd, vélar sem gera ekkert meira en að koma þér frá A til B.
Getur fengið Toyota Hiace með sæmilegum vélum hérna heima en þeir eru bara dýrir, mikið sett á þá notaða.
Erlendis geturu fengið þessa bíla með 170-200+ hp vélum sem geta náð þessum bílum í kringum og yfir 200 km hraða. Sem dæmi: getur t.d. fengið VW caravelle með VR6 mótor. Starex geturu fengið með 175 hp vél og Vito-inn með 205 hp. Og ég veit til þess að hægt er að fá Benz Sprinter með vél sem hægt er að halda á 160 km hraða á hraðbraut, nokkuð gott fyrir svona stórann bíl. Þeir Sprinterar sem ég hef prófa hér heima hafa rétt verið að slefa yfir 115 km hraða með allt í botni.
Allavega nóg af röfli í mér í bili, kannski ertu að pæla í einhverju allt öðru. Ef þú hefur einhvern bíla í huga, láttu okkur vita.
Meira info frá þér, frekari upplýsingar og hjálp frá mér/okkur.
_________________ Sverrir Már
Fyrri BMW: BMW 518i E34 ´91 / BMW 735iA E32 ´92 / BMW 535iA E34 ´89 / BMW 318iA E36 ´93
|