Ég var að keyra heim rétt áðan, er að beygja á ljósum og haldið þið ekki að helvítis dekkið hafi flogið undan vinstramegin að aftan.... Fór út og þá liggur bíllinn á bremsudisknum og allir boltarnir horfnir úr felgunni

Fór að litast um og aðeins aftar sé ég alla boltana 5.
Annaðhvort er einhver svona gífurlega fyndinn að losa boltana hjá mér... eða ég veit ekki hvað.. Jú gæti þurft að hjólastilla bílinn, finnst samt ólíklegt að slæm hjólastilling geti losað boltana á 2-3 dögum þar sem boltarnir voru allir rígfestir í vikunni....
