Enn var haldið áfram:
Í nokkurn tíma hefur bensínmælir og hitamælir hagað sér óeðlilega og eftir að hafa lesið sig til á hinum ýmsu forum þá var niðurstaðan sú að komið væri tími á SI battery. Þannig að það var ráðist í að ná mælaborðinu úr.
Í upphafi.

Hafði áður tekið borðið út til að mála nálar rauðar ( ///M style )


SI borð sést neðst á myndinni.


Hér sést SI borðið og battery sem eru 2 stk.

///M logo og 4 cyl kubbur.

SI battery heita Sanyo Electronic CR14250SE (3V) og þau fékk ég hjá
http://rafborg.is/Mælaborðið mitt er Motormete en það er mismunandi milli þess og VDO borða hvaða battery eru notuð.
Þetta eru Lithium Lon battery svo fara þarf varlega þegar loðar er í borðið. Nýju battery inn eru með ásoðnum eyrum en ekki eins og í borðinu svo þetta er ekki beint plug and play. Mælaborðið er 18 ára gamal svo ég var forvitin að mæla hvað spennu battery inn gætu haldið uppi, það kom mér á óvart en spennan mældist yfiri 3V eða gömlu 3.04V en ný 3.27V en það segir kannski ekki allt því gömlu gætu fallið við álag.
Allavegana hefur ekki borið á vandræðum með mæla eftir þetta hvort það var battery eða slæm tenging.
Úr því að búið var að rífa í sundur þá var freystandi að skella í hvítum skífum sem góður kraftsfélagi lét mér eftir, er sennilega einn af fáum með mph skífur þar sem bíllinn er usa model.

Allt komið saman

Er bara alveg að fíla þetta.
Ok og áfram heldur þetta update.
Þar sem ég var búin að losa M tech I stýrið þá var það ekki sett aftur. Ég var búin að kaupa lítið ( 370mm ) M tech II stýri með nýju leðri og ///M saumum, þetta var búið að vera lengi á dagskrá hjá mér og ég er mjög sáttur.



Samanburður á I (370mm) og II (390mm)


Og ein svona út í loftið

Búið að benda mér á að lítið af myndum er til innan úr bílnum svo ég reyndi að verða við því en það er ekki auðvelt að ná alvöru myndum nema þá að eiga gleiða linsu en vona að þetta skili sér, betri seinna.
Stýrið komið á og mælaborð í


///M3 Sæti 2x2 + hurðarspjöld

Bucket at the back



Nýir pokar á gír og handbremsu



_________________

E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter