gstuning wrote:
Stanky wrote:
gstuning wrote:
Enn sem komið er í 99% tilfella hef ég rukkað fyrirfram vörur.
Tek sko ekki í mál að menn borgi bara eftir á.
Hef heyrt rétt um þúsund sinnum
"kom eitthvað uppá , verð að bíða með þetta"
Þess vegna panta ég ekki að utan án borguna

Uvels hefur alltaf borgað mér , enda þurft að borga fyrifram

Þetta gengur með vörur sem kosta ekki of mikið.
En mér finnst skiljanlegt að borga eitthvað inná viðkomandi ef þetta er almenn vara. En ef þetta er sérstök vara sem passar bara í bíla sem aðeins 10 stk eru til á landinu þá skil ég þá pólisíu að borga fyrirfram.
En það er pínu kjánalegt að fara inn í einhverja búð og borga áður en maður er með vöruna í höndunum.
Þetta er nú bara mín regla. Og hún hefur gengið upp fínt.
Ef menn eiga ekki pening til að borga allt núna sama hvað það er mikið þá geta þeir komið til mín þegar þeir eru með allt ready, ég sé bara ekki vandamálið.
Og það eru engar almennar "tjúninga" vörur sem ég sel. Enda á ég enn KW E34 dempara sem hafa ekki verið keyptir enn og nóg til af svoleiðis bílum hérna, og verðið er vel vel vel lægra enn að flytja þá inn núna.
"Ef ég lána þér fyrir vöru og þú borgar svo ekki þá verð ég fúll, ef þú færð ekki lánað og getur ekki fengið vöruna þá verður þú fúll, þá er betra að þú sért fúll en ég" Hef ég oft lesið hingað og þangað,.,
Mín skoðun á þessu er einföld: Ef maður hefur ekki efni á hlutnum, þá verður maður bara að bíða.
Hvorki ég, né nokkur annar maður getur ætlast til þess að nokkur hér sé einhver lánastofnun. Ef maður getur ekki fengið kredit í banka fyrir svona hlutum, þá getur maður ekki farið fram á það að bláókunnugur maður á spjallborði geri það.
Ég hef heyrt um að menn hér láti gera og græja bílana sína og svo kemur að greiðsludegi og þá þarf eitthvað mikið að redda hinu og þessu til að málið gangi upp, mér datt bara ekki í hug að þetta væri svo algent eins og það virðist vera.
"Já sko hann er ekki búinn að borga mér, svo ég get ekki borgað þér!"... mér finnst svona afsakanir og bull bara fáránlegt.
Mér myndi ekki detta í hug að kaupa þjónustu eða varahluti, vitandi að það gæti verið vesen að útvega mér aur fyrir hlutnum.
Lang besta aðferðin er að greiða við afhendingu, sem er að vísu ekki alltaf hægt. Dæmi um það er t.d. þegar einstaklingur biður t.d. annan aðila að panta vöru fyrir sig að utan. Í þessu tilviki finnst mér ekki hægt að ætlast til þess að sá sem pantar vöruna leggi út fyrir henni, en um leið treystir maður ekki hverjum sem er í svona viðskiptum.