ValliFudd wrote:
Simple.. Það er fínt að díla við hann EF... þú lætur hann ekki hafa pening fyrr en þú ert kominn með vöruna

Og mér sýnist sá sem stofnaði þennan þráð hafa vitað það eða allavega orðar hann póstinn þannig, svo það var BARA heimskulegt að láta pening af hendi án þess að fá vöruna afhenta á staðnum..

Þetta er nú ekki alltaf svo einfalt. Menn vilja fá oft fyrirfram borgað (sem er alveg skiljanlegt þ.e. ef menn eru að stunda heiðarleg viðskipti) og þá er ekkert annað í stöðunni en að borga fyrirfram, annars er ekki hægt að klára viðskiptin. Auðvelt fyrir þig að kalla menn aula að stunda viðskipti við hann en hvernig átti maður að vita fyrirfram að kauði sé lélegur í viðskiptum. Þú ert væntanlega búinn að brenna þig á honum og getur því sagt að það sé ekki sniðugt að stunda viðskipti við hann.
En svo er hitt... að það er ekki hægt að segja bara "hættið að stunda viðskipti við kauða"
Það var enginn sem varaði mig við honum né hafði ég lesið neina vafasama þræði um hann jafnvel þó ég hafi lesið spjallborðið í sennilega ár eða meira áður en ég ákvað að kaupa smotterísdót hjá honum(myndi aldrei fara útí stór viðskipti við einhverja svona).
Þess vegna verður eitthvað að gera til að menn bara yfir höfuð stundi ekki viðskipti við hann, og þar með talið einhverjir nýliðar sem ekki hafa lesið neina þræði um hann.
Til dæmis væri bara hægt að banna honum alveg að auglýsa hérna. Það væri ágætis byrjun. Þá er hann ennþá skráður á spjallið en ekki bannaður og því gætu menn mögulega haft samband við hann til að koma kvörtunum á framfæri.
Hinn möguleikinn er svo að menn tækju sig saman og hefðu uppá honum og töluðu við manninn á raunhæfum nótum til að reyna fá úrlausn mála.
Því ég get ekki séð að það að kíkja til hans og "spjalla" við hann með kúbeini eða álíka fái peningana til baka sem menn hafa borgað honum fyrirfram, en sitt sýnist hverjum.
Vil taka fram að ég hef þó fengið það frá honum sem um var talað en verð og ýmislegt annað stóðst ekki ásamt tollgjaldi, þurfti svo að senda aftur til baka, ábyrgð og blablabla...
_________________
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
