BMW 325i Touring - Azev A komnar undir Bls. 38

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby Aron Andrew » Fri 01. May 2009 12:54

þessar felgur fara honum hrikalega vel þrátt fyrir lip-leysi! 8)
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby Einarsss » Fri 01. May 2009 12:59

jebb kemur mjög vel út ... verður vel dópaður þegar þú ert kominn með spacera að aftan ;) myndi taka 25mm spacera ef þú heldur að það gangi upp
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby JonFreyr » Fri 01. May 2009 13:07

Þarf að mæla hversu mikið ég get leyft mér, 15mm væri fínt en hugsanlegt að hann þoli meira. En seinni-tíma vandamál.
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby arnibjorn » Fri 01. May 2009 14:37

Ekkert lip???? :hmm: #-o
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby Fatandre » Fri 01. May 2009 16:09

JonFreyr wrote:Þarf að mæla hversu mikið ég get leyft mér, 15mm væri fínt en hugsanlegt að hann þoli meira. En seinni-tíma vandamál.


Seinni tíma vandamál?
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53
User avatar
Fatandre
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1870
Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby JonFreyr » Fri 01. May 2009 16:51

Fatandre wrote:
JonFreyr wrote:Þarf að mæla hversu mikið ég get leyft mér, 15mm væri fínt en hugsanlegt að hann þoli meira. En seinni-tíma vandamál.


Seinni tíma vandamál?


Jamm bara rugl að fara að dunda sér í að finna spacera á meðan stærri vandamál bíða.
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby F2 » Fri 01. May 2009 21:49

...
Last edited by F2 on Mon 20. Jul 2009 17:21, edited 1 time in total.
Volvos always get bitches... its just fact... they cant resist the safety and the idea of not having to buy a different car when they have kids... bitches love that
User avatar
F2
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1697
Joined: Thu 22. Jul 2004 14:27
Location: over there

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby JonFreyr » Mon 04. May 2009 10:45

Jæja...ég púllaði sem semsagt AronAndrew á þetta um helgina. Óheppni á óheppni ofan, bíllinn bilaði og ég sat heima með þvílíkan móral og vildi ekkert annað en komast til Þýskalands og brjálast á myndavélinni og sötra bjór. Kom bílnum heim sama dag og bara það kostaði talsvert mikinn pening, vildi bara ekki láta hann standa í vegkantinum yfir nótt því að nýjar felgur án lásbolta er easy-money fyrir óprúttna aðila. Langaði mest til að láta draga bílinn á haugana og skilja hann bara eftir en verandi 31 árs gamall varð ég að sýna meiri þroska en það. Gerði ekkert nema skoða aðeins ofan í húddið á laugardeginum og athuga hvort eitthvað sæist utan á mótor, ólíklegt en lítið annað að gera á bílastæðinu fyrir utan.

Sunnudagur var notaður til að tjakka bílinn upp og skoða undir hann, hafði tíma meðan tvíburarnir sváfu lúrinn sinn og hafði fengið lánaða búkka, skoðunarspegil og sveigjanlegt skoðunarljós. Hvergi olíusmit né neitt annað grunsamlegt, fann hinsvegar leka við gírkassa sem kemur frá pakkdós. Það þarf að laga og skipta um gúmmípúðann því hann er aðeins farinn að slitna kringum boltana.

Restina af deginum lá ég á sjúkrahúsi, hafði greinilega legið asnalega undir bílnum og slátraði hálsinum á mér, sársaukinn var slíkur að ég grét. Er núna á gríðarlega skemmtilegum kokteil af verkjastillandi og vöðvaslakandi. Er rosalega léttur í höfðinu og kærulaus, skal forðast verkefni sem krefjast einbeitni og athygli. Má ekki fara út að keyra sem skiptir kannski minna máli, spurning um að niðurhala Fear & Loathing in Las Vegas fyrir kvöldið. Næsta verkefni er að opna mótorinn og finna orsökina, svo bíða eftir útborgun og klára þetta vesen. Koma vandamálinu frá og reyna að njóta bílsins.

Og til að gleðja Gunna GST þá ætla ég að kaupa 10mm spacera allan hringinn og svissa fram- og afturfelgum 8)
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby Mazi! » Mon 04. May 2009 11:02

:shock:

drulluflott samt svona án lips
Image
User avatar
Mazi!
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 6789
Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27

Re: BMW 325i Touring - Felgur og vesen bls. 20

Postby JonFreyr » Wed 06. May 2009 22:00

Þá er búið að laga drusluna, fékk aðstoð frá eldri manni sem sér um verkstæðið hjá SAS. Hann reyndist svo vita heilan helling um bíla þó svo að hann sé flugvirki, og honum fannst sko ekkert leiðinlegt að fá að vera með. Engir brotnir rocker-armar né gormar, það var óhertur 10mm gaur exhaust megin á cylinder 6. Bílnum var startað og hann gengur alveg jafn-asnalega og áður, tikkar reyndar ekkert meira en áður sem er hrikalegur léttir. Þessi annars ágæti maður (Frank) benti mér á að kúplingslegan hjá mér væri komin með krabba, vissi það svosum fyrir að hún væri ekki 100%. Bíllinn verður dreginn heim á morgun og fær að standa í einhvern tíma.

Bíllinn verður ekkert notaður næstu vikurnar vegna peningaleysis, það eina sem ég mun gera er að skipta um hjólalegur að framan og setja 13mm spacera að framan og aftan. Hann mun þó allavega vera flottur hérna fyrir utan, kannski ég bóni hann annað slagið. Þessi þráður mun semsagt leggjast í dvala um ókomna tíð, ég er eiginlega búinn að ákveða að kaupa mér aðra vél. Mun setja inn myndir þegar að spacerar eru komnir og bíllinn nær endanlegri mynd, svo mun ekkert gerast fyrr en í haust. So sorry :cry:


Þess má til gamans geta að gamli maðurinn kallaði mig fávita oftar en einu sinni, þá sérstaklega vegna þess að ég keypti alltof breiðar felgur og alltof mjó dekk....svo fannst honum hálfvitalegt að lækka bíla svo mikið að þeir væru með öllu óökuhæfir :lol:
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Re: BMW 325i Touring - Long-Term Parking.

Postby bebecar » Fri 08. May 2009 17:52

Jæja, það er gott samt að þetta var ekki meira. Þú notar bara sumarið til að viða að þér pörtum til að gera bílinn djúsí og hjólar bara á meðan... það verður pottþétt farin önnur ferð næsta sumar þannig að þú kemur bara með þá - hver veit nema það verði farin haust ferð líka?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Re: BMW 325i Touring - Long-Term Parking.

Postby JonFreyr » Wed 13. May 2009 08:13

Minniháttar betrumbætur, ónýtar demparafóðringar að aftan og skipt um hjólalegur að framan....svo 13mm spacerar allan hringinn. Gerir gríðarlega mikið fyrir útlitið 8) demparafóðringar voru slitnar TOTHEMAX en hjólalegur voru reyndar ekki svo slæmar.

Image
Image
Image
Image
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Re: BMW 325i Touring - In Progress.

Postby Fatandre » Wed 13. May 2009 10:05

Hell yeah!!!!
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53
User avatar
Fatandre
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1870
Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59

Re: BMW 325i Touring - In Progress.

Postby JonFreyr » Tue 26. May 2009 12:47

Gat loksins fundið nokkrar myndir á símanum mínum, nokkrar myndir af hedd-vinnu og svo stutt video sem sýnir hvernig demparafóðringar eiga EKKI að vera :lol: þarna var heddið tekið og hreinsað og ventlar stilltir, þetta var áður en planlögð ferð til Nurburgring fór í vaskinn og byrjunin á veseninu sem ég er enn að eltast við. Er síðan þá búinn að skipta um allar vacuum slöngur og enn er hægagangur pínu ójafn en samt alveg þolanlegt, ventlatikk er ennþá að angra mig þó ég sé búinn að margstilla þá. Þó hefur tikkið minnkað talsvert, þetta er hins vegar orðið gamalt og eitthvað slitið sem gerir að ventlatikk er nánast ómögulegt að losna við. Mun samt halda áfram að dunda mér í þessu, bara til að sjá hversu hljóðlátt þetta getur orðið 8)

Næstu helgi kaupi ég meira start-gas til að athuga hvort ég hafi ég náð að loka fyrir falskt loft (vacuumleka), ef allt er orðið 100% þétt þá er næsta skref að athuga með nýjan hægagangsventil. Hlýtur að vera í lélegu ástandi þegar að hægagangur breytist ekkert þó maður taki hann úr sambandi :lol: kostar bara tæplega 30þús. og var alls ekki inni á fjárhagsáætlun júní-mánaðar.

Image
Image
Image
Image
Image



Ps. Olíusmit við heddið er ekki frá heddpakkningu heldur frá öndunar-röri og sulli sem kom úr gömlu soggreininni og fóðringarnar voru svona lélegar beggja megin :)
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image
User avatar
JonFreyr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1783
Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Location: Kaupmannahöfn

Re: BMW 325i Touring - Nokkrar myndir Bls. 21

Postby arnibjorn » Tue 26. May 2009 12:56

Þú átt klárlega ekki að eiga E30 ef að slakur hægagangur og ventlatikk fer svona í taugarnar á þér! :shock: :)
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 29 guests