Held það sé bara halda þessu við með að fægja þetta, maður gerir þetta væntanlega við bíla sem maður heldur uppá og fínt að bæta þessu inní þrif rútínuna
Jæja smá update af þessum hjá mér, ég lét loksins verða af því að smíða púst undir hann og ég fór með hann til hans Einars og lét hann smíða fyrir mig. Hljóðið er bara nokkuð flott en svo er annað sem ég þarf að kanna hvort að hann geti ekki reddað fyrir mig með pústið og það sést á myndunum
Ég er ekki allveg sáttur með þessa stúta á pústinu
Já aftastikúturinn er nánast eins og orginal kúturinn er í E23 sem er ekki að passa nógu vel við að bíllinn sé með þessari svuntu, en hljóðið er gríðarlega flott. Ég þarf að spjalla við Einar á morgun og gá hvort að það sé ekki hægt að gera eitthvað í þessu þannig að kúturinn æpi ekki svona á mann
Já ég vissi að þú værir að tala um að mála kútinn svartan en það er samt ekki að gera sig, ég ætla bara að tala við Einar og kanna hvort að það sé ekki hægt að gera eitthvað í þessu með þennan kút