Sælir kæru spjallverjar,
Ég ætla bara að vara ykkur við honum Uvels hér á kraftinum, ég veit að ég er ekki sá fyrsti

,
en hann bauðst til að redda mér heddi í bílinn hjá mér og sagði mér að hann þyrfti að fá peningin
fyrst, en útskýringin fyrir því sagði hann að hann þyrfti að borga gaurnum á partasölunni úti fyrst svo
hann myndi senda þetta af stað

,
síðan bíð ég og fæ alltaf að pakkin komi ekki í dag en kemur sennilega á mánudag, og að hann hafi gleymt
að skrifa eitthvað og hin og þessi afsökun, síðan fór ég að taka eftir um þarsíðustu helgi að hann var
að selja verkfæri úr skúrnum þar sem hann hafði afstöðu, þá kveikti þá á perunni,
þetta var á Sunnudagskvöldi btw,
ég hringdi í hann og hann svaraði ekki, og síðan á mánudeginum fór ég í próf(er í skóla og hef ekki efni á að vera
rændur), hringdi í hann eftir próf ekkert svar, síðan keyrði ég upp í skúr allt horfið úr bílskúrnum og gaurinn
bara stunginn af, tók líka startkapla með sér sem ég á(kostuðu 7000þús kall í N1), síðan hitti ég strákin
sem var að leigja með honum skúr, og hann skuldaði honum líka leigju og tók verkfæri sem hann átti með
sér,
gaurinn hafði semsagt bara stungið af á Sunnudagskvöldinu, og var ég ekkert lítið pirraður yfir þessu og borgaði ég
honum 50þ kall fyrir heddið sem enn hefur ekki látið sjá sig

,
en ég hafði þekkt hann síðan í Október og hafði hann verið bara hinn "fínasti náungi" og trúði ég því ekki að
hann myndi stinga mig í bakið

, núna svarar hann ekki síma né sms, sennilega bara sáttur með sinn gróða þar sem
ég hafði nú tekið eftir því að þessi maður hafði ekki unnið í allan þann tíma sem ég hef þekkt hann, og
var honum ekki sagt upp veit ég, þiggur þar af auki bara atvinnuleysibætur(ekki að segja að menn þurfi ekki atvinnuleysis-
bætur ef þeim er sagt upp).
En þetta er mín reynsla af þessum manni, en ég átti nú samt nokkur heiðarleg viðskipti við hann en það afsakar ekki þessa
framkomu
Kveðja