Langaði aðeins að sjá hvernig vetrardekk menn eru með undir bílunum sínum. Það kom upp umræða í byrjun vetrar um þetta, en það skiptir ekki máli.
Endilega merkiði við í könnuninni og segiði hvernig dekk þið eruð með Tegund/gerð og stærð, negld/ónegld.
Ég byrja bara;
Ég keypti mér BFGoodridge Winter 2 dekk í stærðinni 205/65/15, ÓNEGLD. Þetta eru geðveik dekk, grípa alveg massíft og heyrist nánast ekkert í þeim. Gangurinn kostaði mig heilar 34.600 kr undir komið með öllu!


