bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 19. Jun 2025 18:08

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 16 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 16:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Heilt og sælt veri fólkið..

Aðilar hérna hafa verið að selja,, farartæki og annað..

sumt er að margra mati dýrt annað ekki

eins og staðan er ,, þá held ég að við ættum að vera þakklát,, ,, fyrir mörg hver verðin sem í boði eru,,

€ er 170+ DKK er 24 :shock: .. eða nei,, þetta er orðið hálf skoplegt hvernig veröldin refsar okkur ,,,,,,,

í DK kostar 98 oct 9.98 = 230+ @ Líter OK,, ef ég tek feita rönnið niður á slaufuna 17L@ 100 km miðað við 200 kr lítrann þá er það ca 30.000 í BENZIN :shock: :shock: :shock: :shock:

Staðan hjá okkur er hreinlega að verða svo skelfileg varðandi erlenda gjaldmiðla að ,,útskúfun er það sem kemst næst , hugsun minni
Ísland er núll og nix ,, miðað við aðra gjaldmiðla,,

FLEST sem í boði er á Íslandi er orðið svo ódýrt í samanburði við annað ,,,, :shock:

er einhver tilbúinn að borga 3.50€ fyrir redbull :squint: í HAGKAUP :?

Lítum oss nær og ígrundum þau verð sem í boði eru.. ENGINN er að fara að kaupa eitt eða neitt erlendis frá

((((( ath ég tek gagnrýnina einnig til mín )))))))

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 16:30 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 07. Jun 2007 18:23
Posts: 1070
Location: Húsavík
Það hefði átt að skipta þessu brotajárni sem við köllum krónu út fyrir mörgum árum

_________________
bmw3

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 16:35 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Ég hef upplifað þetta svipað - maður fær kast þegar maður kemur heim því allt er svo ódýrt. Við erum með einhverjar tekjur hér úti í DKK og það hjálpar en það sem maður hefur verið að vinna fyrir Moggan t.d. það verður bara eftir heima því það verður að engu hér úti.

Hinsvegar þá hófst þetta trend fyrir sirka tveimur árum síðan þegar krónan byrjaði að gefa eftir og vöruverð byrjaði að snarhækka hérna úti. Núna þegar ég kom heim síðast í mars þá fannst mér æðislegt að koma heim, sér í lagi vegna fyrirtaks verða á nánast öllu. Sem dæmi get ég nefnt að ég borga 800 rúmar kall fyrir venjulegan Cappuchino niðrí bæ, kaffipokinn kostar rúmlega 1200 kall (250gr), bensínið eins og Sveinbjörn nefnir, meira að segja bjór og annað er orðið á svipuðu róli, meira að segja brauðið hjá Jóa Fel er ódýrara en eitthvað frauðdrasl keypt út úr stórmarkaði hér! Það munar helst í kjöti þó ekki sé það mikið orðið. Með öðrum orðum þá er hægt að hafa það fínt á Íslandi ef maður bara skuldar lítið - en það eru nú ekki margir sem gera það.

Með bíla hinsvegar - þá held ég að fólk sé í alvarlegri afneitun hvað varðar verðfall á notuðum kraftabílum sem voru fluttir í stórum stíl til landsins síðustu ár. Menn eru ennþá að verðleggja bíla eins og árið 2008 hafi aldrei komið. Það er ENGIN að fara að flytja inn bíl núna og þýðir ekkert að bera verðin saman við það sem er í gangi erlendis. Maður hefur séð nokkuð marga bíla hér á kraftinum sem fara fljótlega, sumir fóru eftir langan tíma þrátt fyrir að vera á súper verði (530D Touring t.d.) og svo eru enn aðrir sem eru að reyna að selja næstum tíu ára gamla krafta bíla á fleiri milljónir. Hvernig stendur t.d. á því að 545 bílar fást á þrjár milljónir en margir ódýrari gripir eru verðlagðir MIKLU hærra, jafnvel 520 bílar geta verið dýrari en 545 þó árgerðin sé svipuð!

Það er allavega ekki svo slæmt að vera heima eins og margir virðast halda - hér úti er bara dýrt að lifa þó maður sé með allar tekjur í DKK.

Já, og krónan er ekki vandamálið - fullt af evrulöndum sem glíma við álíka vandamál og Íslendingar og ekki er það krónunni að kenna.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 16:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
HALLO STOP

ekkert peninga bull eða krónu bull

bíla umræður takk fyrir

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 16:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
Alpina wrote:
HALLO STOP

ekkert peninga bull eða krónu bull

bíla umræður takk fyrir

Þú varst nú ekki að tala bara um bíla sjálfur.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 17:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Enda er enginn að fara flytja inn bíla í dag og það er ekki fyrir alla að flytja bílana sína úr landi. Þessvegna finnst mér svolítið sérstakt þegar fólk segir að maður getur ekki fengið X bíl að utan fyrir minna en Y og réttlætir þannig verðhækkun.

Þú færð ekki bíl eins og minn á undir €12000 að utan, það eru c.a. 4 milljónir. :shock: Ég gæti aldrei ímyndað mér að borga það mikið fyrir 320ci.

_________________
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 20:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
SteiniDJ

það þurfa samt að vera heilindi og sanngirni :wink:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 20:37 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Posts: 1210
Location: Keflavík south
Nýir varahlutir ](*,) og úrval ekkert.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 21:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Posts: 2232
Location: ókunnug.
Ég var að spá í að panta mér ný dekk undir X5 frá USA
verðið í dag er 198.000 kr. en var 87.000 kr. í september sl. :(

_________________
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 21:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
Þýðir lítið að spá of mikið í þessu, það er dýrt að búa í DK og bílar eru dýrir. Það er dýrt að búa á Íslandi en bílar eru tiltölulega ódýrir, "þú" borgar miklu minna fyrir bensínið á Íslandi en í DK, veit ekki hvernig er með varahluti en þeir original partar sem ég hef verð að versla eru ekki ódýrir hérna úti. Þessi 21 árs gamli E30 sem ég keypti er kominn vel yfir 1,5 kúlu og hann er langt frá því að vera góður. Bara það að eignast bílinn og fá hann á númer kostaði mig kúlu, myndi einhver þarna heima borga svo mikið fyrir miðlungsgóðan E30 sem þarf talsvert viðhald ? Við erum að tala um endurlífgun á mótor og gírkassa, lakk þarf viðhald og síðasti málari sem fór höndum um bílinn var líklegast ölvaður. Bílstjórasætið mun kosta mig 80-90 þúsund og þess má geta að ég á efnið sem vantar og geri nánast allt sjálfur nema sauma.

Pointið....það er ekki dýrt að stunda þetta sport á Íslandi. Það er ódýrt í samanburði við flest nágrannalöndin, Svíþjóð er reyndar asssskoti gott fyrir bílanjerði. Ef ég ætti að byrja frá byrjun þá yrði Svíþjóð fyrir valinu, klárlega.

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 23:07 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Posts: 981
Location: Ásbrú
JonFreyr wrote:

Er sanngjarnt að miða öll verð við íslenska krónu ? er ekki nær að miða við meðalverkamannalaun í hverju landi fyrir sig?
Ég meina taxtalaun fyrir verkamann hér eru um 900kr. ísl. sem eru um 40DKK.. á tímann eða 130.000ísl / 5700tæpar DKK á mán
Hver eru tildæmis taxtalaun í Danmörku? (hver væri kostnaðurinn í vinnustundum erlendis og heima)

_________________
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:
"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Fri 08. May 2009 23:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Alpina wrote:
SteiniDJ

það þurfa samt að vera heilindi og sanngirni :wink:

Já, en á svona tímum þá fer bílverð oftast niður, nema það sé algjör skortur. :)

_________________
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Sat 09. May 2009 00:30 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Mon 19. Apr 2004 02:07
Posts: 2645
Location: á M5 á hlið eða í læknis leik með systur þinni
sölu á stúlkum????? :shock: :shock: :shock: :shock:

kv Kolbrún Halldórsdóttir

_________________
Þórður Finnbogi
GSM:663-2524

BMW M5 E39 1999 veðlaus :D
BMW 316i E36 1999 kraftlaus
Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Sat 09. May 2009 06:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 11. Mar 2007 20:57
Posts: 1783
Location: Kaupmannahöfn
BjarkiHS wrote:
JonFreyr wrote:
Þýðir lítið að spá of mikið í þessu, það er dýrt að búa í DK og bílar eru dýrir. Það er dýrt að búa á Íslandi en bílar eru tiltölulega ódýrir, "þú" borgar miklu minna fyrir bensínið á Íslandi en í DK, veit ekki hvernig er með varahluti en þeir original partar sem ég hef verð að versla eru ekki ódýrir hérna úti. Þessi 21 árs gamli E30 sem ég keypti er kominn vel yfir 1,5 kúlu og hann er langt frá því að vera góður. Bara það að eignast bílinn og fá hann á númer kostaði mig kúlu, myndi einhver þarna heima borga svo mikið fyrir miðlungsgóðan E30 sem þarf talsvert viðhald ? Við erum að tala um endurlífgun á mótor og gírkassa, lakk þarf viðhald og síðasti málari sem fór höndum um bílinn var líklegast ölvaður. Bílstjórasætið mun kosta mig 80-90 þúsund og þess má geta að ég á efnið sem vantar og geri nánast allt sjálfur nema sauma.

Pointið....það er ekki dýrt að stunda þetta sport á Íslandi. Það er ódýrt í samanburði við flest nágrannalöndin, Svíþjóð er reyndar asssskoti gott fyrir bílanjerði. Ef ég ætti að byrja frá byrjun þá yrði Svíþjóð fyrir valinu, klárlega.

Er sanngjarnt að miða öll verð við íslenska krónu ? er ekki nær að miða við meðalverkamannalaun í hverju landi fyrir sig?
Ég meina taxtalaun fyrir verkamann hér eru um 900kr. ísl. sem eru um 40DKK.. á tímann eða 130.000ísl / 5700tæpar DKK á mán
Hver eru tildæmis taxtalaun í Danmörku? (hver væri kostnaðurinn í vinnustundum erlendis og heima)

Ég er búinn að lækka aðeins í launum hérna úti því að Sterling borgaði mér fullorðins-lærlingslaun, SAS tekur hins vegar ekki þátt í þeim pakka sem þýðir að ég fæ milli 60 og 70 þúsundum minna útborgað hvern mánuð, fyrir þá lækkun var ég að fá ca. 360þús útborgað en liggur í 295þús í dag. Áður en þú/þið kommentið á launin má geta þess að rúmlega helmingurinn fer BARA í leigu og svo helmingurinn af afganginum fer í dagvistunargjöld. Auðvitað hef ég ágætis laun, annars væri ég ekki hérna úti. En OK-piss er það ekki, langt því frá !

_________________
Volvo 945 Túúúúúrbó

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Umræður um sölu
PostPosted: Sat 09. May 2009 11:01 

Þá 300þús í íslenskum krónum á gengi dagsins í dag ?
Ef menn spá í því þá væru þetta um 150-200þús á ársgömlu gengi.

en eins og ég benti á þá gefur kostnaðurinn í vinnustundum að aðra mynd af dæminu

Audi A4 1,8 TFSI 4 d. 160 hö verð 6.480.000 eða 8153,6 vinnustundir (miðað við byrjunardagvinnulaun launaflokkur 1 s.k.v launatöflu Eflingar) http://efling.is/efling/upload/files/kj ... _sa_mf.pdf

_________________
Bjarki Steingrímsson.
8253105

Jeremy Clarkson wrote:
"Handbuilt" is just another way to say "the doors will come off"

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 16 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 34 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group