by bebecar » Mon 12. Jan 2004 08:58
Ef þeir eru sprautaðir þá flagnar þetta allt af á NO TIME!
Það er best að athuga með þetta hjá umboðinu. Ef það er of dýrt eða ekki til þar þá er verkstæði hér í bænum sem að afkrómar nýja bíla og það heitir Tengsli.
Þetta er hinsvegar ekki ódýrt því þetta er gífurlegt vandaverk og mjög vandlega gert.
Í þetta er notuð filma (eins og í myndavélar) og límd á mjög kyrfilega og vandlega. Ég veit um forstjóra hér í bæ sem lætur gera þetta við alla sína bíla (eftir að fyrirtækið hætti að versla við B&L (ekkert Shadowline í boði nema þar)) og þetta er óaðfinnanlega gert og ekki séns að ná þessu af! Semsagt, steinkast hefur ekkert í þetta að segja og aðferðin er jafn örugg og aðferð framleiðandans.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road