Fór 3 vikur til Kína í Október 2007.
Tilgangur ferðarinn var aðallega að skoða fiskeldið þar sem pabbi er að stjórna og skoða hvernig kallinn hefur það í þessu landi.
Gistum á nokkrum hótelum í Hong Kong, það var alveg gaman þar og ekkert smá hrein borg, fullt af skemmtilegum hlutum þar sem vert er að skoða, endalaust af hlutum þar en þegar veðrið er alveg stillt þá myndast rosalegt mengunarský þar yfir.
Svo kíktum við á þetta fiskeldi sem var um 2,5 tíma frá Hong Kong við smábæ sem heitir Guangkou, þar vorum við í um 1 viku og þar hafði fólk varla séð hvítt fólk áður þannig það var starað á mann hvert sem maður fór.
Flugum síðan til Xiamen og tókum smá túristarúnt þar, skoðuðum Buddha hof sem var efst á e-h fjalli og safn um sögu e-h fornættar í kína. Voðalega erfitt að muna nöfnin á þessu því túlkurinn sagði okkur bara kínversku nöfnin
Veit ekkert hvað það kostar að ferðast þarna miðað við gengið núna en það var alveg ágætlega ódýrt þá, kassi af bjór á 500kr ísl svo eitthvað sé nefnt.
Svo þurfti að fá landvistarleyfi í kínverska sendiráðinu hér á landi til að komast úr Hong Kong. Svosem hægt að sækja um það í Hong Kong en það tekur margra tíma bið en kínverska sendiráðið lét mig einmitt bara fá eins dags passa yfir í kína
Og já það var hellingur af "nýjum" gömlum bílum, því kínverjarnir kaupa gamlar teikningar og búa til gömul model af bílum eins og passat og e-h.
Vegirnir eru líka viðbjóður og umferðarmenningin í Kína er vægast sagt hryllingur og einkennist af chaos.

yfirsýn yfir svæðið með fishfarminu..
vona að þetta hafi hjálpað e-h
