bróðir minn á eitt stykki gullfallegan E46 318iA 2003(seinnihluta árs) sem er ekinn rétt um 80.000km. og hefur gengið eins og klukka í þetta rúma ár sem hann hefur átt hann, s.s. no los problemos
Nema það að hann fór með bílinn í TækniBæ í dag þar sem að hann lét lesa af bílnum sem er ekki frásögufærandi nema það að sá sem að las af bílnum hjá honum spurði hvort að hann væri búinn að láta skipta um tímakeðjuna í bílnum, sem að hann svarar neitandi. Þá tjáði T.B. starfsmaðurinn honum það að hann væri búinn að skipta um tímakeðjur í mörgum af þessum vélum vegna þess að það væri galli í tímakeðjunum í þessum mótorum sem að BMW bætti ekki með ábyrgð og að þær væru að fara í um 60þ.km.
Þannig að ég spyr; hafa menn eitthvað heyrt af þessu,,,,,,GETUR ÞETTA STAÐIST??





