Við Sveinn höfum oft rætt þetta og retrospect er alltaf...ehm retrospect
En fyrir mína parta, þá skiptir aflið ekki svo miklu máli. Ég myndi frekar vilja léttan bíl, með normal afli og gríðarlega góðum bremsum og stóla á áreiðanleika - semsagt miða allt út frá því að ná sem mestum brautartíma. Það er það sem Sveinn er að tala um.
For bragging rights however
Reyndar, þó það sé leiðinlegt að láta taka fram úr sér á beina kaflanum þá er enn meira svekkjandi að láta taka fram úr sér í beygjunum en þar nýtast bremsurnar vel, lág þyngd og góður balans eins og minnst er á hér fyrir ofan (minna af vandamálum til að keyra í kringum semsagt). Hinsvegar getur verið góð taktík að hafa nægilegt afl til að pikka bílana upp á beinu köflunum ef maður er ekki eins góður í beygjunum.
Svo má reyndar líka að segja að upp á gamanið sé aflið það sem er kannski best nýtanlegt annarsstaðar en á brautinni - þannig að það þarf að vega og meta þetta allt.
En þessi 320is er algjörlega magnaður - ég skoðaði svona bíla hér úti fyrir 4-5 árum síðan en það varð ekkert úr kaupum aðallega þar sem þeir þurftu allir meiriháttar viðhald. Meira að segja 2 eða 3 þeirra höfðu verið notaðir sem rallý bílar og virðast 320is bílarnir vera mjög vinsælir í það.