Ég skrapp í dag til Jönköping á bílasýninguna þar, hún var ágæt, full mikið af fólki samt.
Það var lítið um highlights en básinn hjá Alpina Club Sweden stóð framanlega hvað varðaði fagmennsku og presentation.
Spjallaði þar við náunga sem ég er strax búinn að gleyma hvað heitir en hann var mjög fróður og kunnugur um BMW og þá sérstaklega Alpina, á svartan B10 Biturbo sjálfur. Sveinbjörn getur kannski sagt hver þetta er.

Þeir voru að vísu bara tveir þarna og með tvo bíla, en þeir voru ekki af verri endanum.
B7 Turbo og B10 Biturbo, það er satt sem þeir segja svíar eru lurbóðir! get it.. lurbo óðir... lurbóðir ... ah never mind
Maðurinn sagði mér að þessi B7 hefði verið í langri uppgerð og væri búið að eyða miklum tíma og vinnu í það að skipta út nánast öllu í vélinni fyrir nýtt eða uppgert og eigandinn væri samt ekki búinn að setja í gang!






Það er varla hægt að lýsa því með orðum hvað þessi Biturbo er svakalegur, lakkið er í ótrúlega góðu ástandi og hann lítur næstum því út eins og nýr.
Hann lúkkaði rosalega vel svona black on black á Alpina teppinu, ég ætla að fá mér svona teppi í hobby herbergið mitt einhverntíman.


Svo voru einhverjir nýrri bílar í grendinni, hendi inn nokkrum af þeim og svo restinni seinna þegar ég nenni.

Þessi M3 er víst tæp 700 hö

Svo rakst ég á einn flottan útá stæði


Ég náði ekkert mikið af myndum, enda var gjörsamlega stappað þarna inni og ég er ekkert sérstakur ljósmyndari í þokkabót.