Það er kominn tími á að skipta út einhverjum fóðringum í bílnum hjá mér og nú er stóra spurningin, oem eða poly... Er búinn að leita aðeins hér á spjallinu og menn virðast vera með voða misjafnar skoðanir á poly fóðringum.
Er einhver svaka munur?
Eru poly það harðar að maður verður marinn á rassgatinu eftir smá keyrslu?
Hvernig er verðmunur? og fara þessar fóðringar mis vel með bílinn?
Ef það er einhver teljandi munur þá gæti ég hugsað mér að fórna smá þægindum (ég er jú á þristi og því ekki að sækjast eftir þægindum).
Væri fínt að heyra einhver álit á þessu


