Ég ætlaði aldeilis að skemmta mér áðan við það að nýta slitin dekk í spólerí en það er eitthvað sem er að klikka í bílnum hjá mér.
Dettur sjálfum í hug að þetta gæti verið drif eða kúpling.
Það kemur gífurlega vond lykt af bílnum að utan, gæti verið verulega sterk kúplings steikingar lykt en finnst þó ekki innan úr bílnum og mér finnst hún vera aftarlega, jafnvel í kringum púst.
Bíllinn er hrikalega máttlaus, fæ ekkert tog í fyrsta gír fyrren ég er kominn yfir 2000rpm og þegar ég gaf hressielga af stað þá kláruðust gírarnir hver eftir annann en ég rétt lak af stað, s.s. eins og maður sé ekki alveg búinn að kúpla.
Og svo skröltir eitthvað aftarlega þegar ég keyri.
Einhverjar hugmyndir hvað gæti verið að?



