Skipti um drif í gær (5. apríl). Gamla drifið var búið að vera leiðinlegt í þónokkurn tíma og var því farið í það að skipta um herlegheitin.
Fékk 3.38 úr 323ci eða 325ci (man ekki alveg hvor það var).

Hérna eru herlegheitin, fékk allan afturendann úr bílnum og allt í tip top standi.

Þegar við vorum 100% að þetta myndi allt ganga saman, þá var byrjað að losa. Gekk mjög smooth fyrir sig.

Það leið ekki á löngu þar til búið var að losa öxlana, allt aftengt og drifið látið síga undan.

Voðalega tómlegt eitthvað.

Drifin hlið við hlið, 3.38 t.v. og 3.45 t.h. Myndin sýnir það ekki vel, en 3.38 var töluvert stærra en 3.45.

Talsverður stærðarmunur á öxlunum og boltunum. Sá efsti er sá gamli sem tekinn var undan.

Öxlarnir aftur. (duh

)

Það leið ekki á löngu þar til nýja drifinu var sett undir, og viti menn, það smellpassaði!

Verið að leggja lokahönd á þetta, gekk alveg eins og í sögu.
Bíllinn er allt annar í akstri og mikið skemmtilegri. Mér er sagt að ég eigi ekki að finna neinn mun, en samt finn ég einhvern. Hann redlinar t.d. núna í 90km/h í öðrum, í staðinn fyrir 81km/h. Kannski er hraðamælirinn bilaður eða eitthvað annað stórskrítið. Ég þakka Vélsmiðjunni í Grindavík kærlega fyrir vel unnið verk!

Svo sótti ég felgurnar í dag og verið er að undirbúa þær fyrir bón og önnur skemmtilegheit. Get ekki beðið, verð að fá þær undir ASAP!

Bílinn að þorna inni í skúr og bíður eftir vænu bónsession!
Takk fyrir að lesa þetta.
